156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[18:15]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hér víkur hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir að allstóru máli sem ég held að sé ekki nýtt að sé verið að ræða hér í dag. Það hafa held ég verið mjög deildar meiningar um það talsvert lengi, alveg frá því að þessi umræða fór af stað, hvort það væri eðlilegt að setja inn í raun og veru með frumvarpinu, og ég held að ég skilji hv. þingmann alveg rétt, hvata til sveitarfélaganna til að fara í botn með sínar álögur til að geta þá fengið meira út úr jöfnunarsjóðnum. Hin hliðin á þessum sama peningi er þá væntanlega að það ætti að vera hvati til að þurfa ekki að fullnýta tekjustofna sveitarfélaga. En það má að sama skapi færa rök fyrir, og það er væntanlega — nú er ég bara að gera mér það upp því ekki samdi ég frumvarpið, að þau sveitarfélög sem eru jafnvel í tiltölulega góðum málum, eru vel rekin og það án þess að fullnýta sína tekjustofna, þurfi þá hreinlega ekki á þessari jöfnun að halda. Ég geri ráð fyrir að það sé hugsunin sem liggur að baki því hvernig frumvarpið er sett fram.

Hv. þingmaður endaði sitt andsvar á spurningunni hvert mat mitt væri á þessu og eftir að hafa lesið umsagnirnar til að mynda þá er augljóst að það eru alls konar hliðar á þessu. Mat mitt er að sjálfsögðu að það er óæskilegt, óháð öllum umsögnum sem hafa borist, að ríkið sé að hvetja til hækkunar á álögum á íbúa landsins. Ég held að það sé nú meginþráður í megninu af því sem kemur frá mér og mínum samflokksmönnum.