Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég vil nota tækifærið og minna á breytingartillögu sem ég hef lagt fram við þetta frumvarp er gengur í rauninni út á það að taka út þessa grein sem nákvæmlega er að hvetja til skattahækkunar á íbúa. Ég held að reikniformúlan sé bara ágæt og ágætlega sanngjörn en það er auðvitað of flókið að ræða það einhvern veginn inni í þingsal þannig að ég hvet hv. umhverfis- og samgöngunefnd til að fara vel yfir það, alveg eins og hv. þingmaður var að gera í sinni ræðu, út frá mismunandi þáttunum. En stóra málið er það að mér hefur fundist á umræðunni hér í dag að þeir sem hafa farið í vörn fyrir þetta frumvarp eins og það liggur fyrir telji að það verði meiri fjármunir til að dreifa til sveitarfélaga sem verr standa. Það er nákvæmlega það sem ég held að sé ekki málið því að með svona hvata þá hvetur þetta sveitarfélögin til að hækka útsvar sitt og þar af leiðandi fá minni sveitarfélög einhvers staðar úti á landi sem hugmyndir einhvers góðs fólks hafa verið um að ættu að fá meira, það verður bara ekki til staðar. Ég hvet hv. þingmann til að kynna sér breytingartillöguna og þingheim allan og vona svo sannarlega að það verði vel tekið í þá breytingartillögu því að ég held að með því værum við komin með ágætis- og mikilvæga breytingu á jöfnunarsjóðnum, því að eins og farið hefur verið yfir þá hefur það staðið til alllengi.
Virðulegur forseti. Vegna þess að hv. þingmaður var að velta fyrir sér umsögnum hérna áðan þá finnst mér líka mikilvægt að það komi fram að frumvarpið í þessari mynd sem það er núna hefur ekki komið inn í þingið áður. Síðast þegar frumvarpið kom var það einmitt ekki með þessu ákvæði sem ég er að leggja fram breytingartillögu um að taka út, þannig að ef það hafa komið inn umsagnir um málið þá var frumvarpið ekki með þeim hætti þá. Það hafði vissulega farið í samráðsgátt áður, og það er eitt af þessu sem hv. þingmaður var einmitt að benda á hér áðan undir liðnum fundarstjórn forseta að er svolítið flækjustig. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þingheimur átti sig á því.