Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Herra forseti. Mér er vel kunnugt um þá breytingartillögu sem hér liggur fyrir frá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur og varðar þetta ákvæði sem hún spurði mig að í fyrra andsvari. Svo ég sé nú alveg ærlegur þá veit ég ekki alveg hvar spurningin lá beinlínis í yfirferð hv. þingmanns. En svona almennt get ég tekið undir með hv. þingmanni að það orkar alltaf tvímælis, svo vægt sé til orða tekið, þegar opinberir aðilar ekki síst eru að ýta undir hækkanir á álögum. Almennt um það má segja að við erum nú þegar og finnum okkur í þeirri stöðu sem þjóð að vera meðal — og auðvitað er það vafasamur heiður sem þó stafar kannski af því að við erum að rembast hér við að reka sæmilegt velferðarríki þótt það gangi nú svona misvel eftir málaflokkum, en það er þá væntanlega það sem er alltaf að ýta okkur í þessa átt að vera með meðal þeirra þjóða sem eru hvað mest skattpíndar á heimsvísu. Þess vegna get ég vel tekið undir með hv. þingmanni að það orkar alltaf tvímælis ef á að stuðla að og setja þrýsting á frekari hækkanir á fólkið í landinu, þó að í þessu tilfelli sé verið að gera það í gegnum einhverja hvata með jöfnunarsjóði til sveitarfélaganna sem hugsanlega bregðast við með því, hafi þau ekki verið með allt í botni, að setja þá bara allt í botn til að vænka stöðu sína gagnvart jöfnunarsjóði, án þess ég ætli að spá því að svo verði. En vissulega kemur til ákveðinn freistnivandi. Hugsanlega hefði átt að vera einhvers konar umbun. Ég velti því bara fyrir mér núna og lít hér yfir til hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, hugsanlega hefði átt að vera einhver umbun fyrir að vera réttum megin við núllið (Forseti hringir.) eða öllu heldur minnka álögur. — En ég er kominn á rautt ljós, herra forseti.