Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Hæstv. forseti. Við stofnun þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr á Íslandi um jólaleytið á síðasta ári fékk þjóðin kartöflu í skóinn sem mun endast henni mjög lengi, því miður. Eitt af því sem einkennir þessa ríkisstjórn að mínu mati er að hún leggur fram mál sem fela í sér skattalækkanir í felubúningi. Þetta mál er eitt af því og menn reyna hér að lauma inn skattahækkun bakdyramegin með því að hóta sveitarfélögum sem hafa verið með lægra útsvar heldur en einhver önnur að jöfnunarsjóðstillegg þeirra verði minna ef þau hækka ekki útsvar upp í hámark eins og flestir aðrir. Þessi ríkisstjórn hefur líka boðað alls konar sparnaðarúrræði, þar á meðal að hætta að prenta út blöð fyrir þingmenn. Ég vona að tölvan mín, sem er að deyja úr rafmagnsleysi, endist ræðuna þannig að ég fari ekki upp á sker með því að geta ekki vitnað í það sem ég ætlaði að gera hér.
Þegar ég var að fara í þetta mál lagði ég mig sérstaklega eftir því sem sveitarstjórnarmenn víða og sveitarstjórnir höfðu sent inn í umsögnum vegna málsins og það kemur mér á óvart að það virðist ekki öllu máli skipta hvort um er að ræða fjölmenn sveitarfélög á þéttbýlissvæðum, ef ég get orðað það þannig, ég get nefnt Suðurnesjabæ, eða hvort um er að ræða minni sveitarfélög eins og Þingeyjarsveit eða Dalabyggð, þessi sveitarfélög virðast samkvæmt umsögnum öll eiga að bera minna úr býtum úr jöfnunarsjóði heldur en áður. Ég verð að viðurkenna, af því að ég er ekki sérfræðingur í sveitarstjórnarstiginu, að þá kemur það mér á óvart að þetta skuli samt hafa þessar afleiðingar og þá er spurningin: Er það vegna þess að frumvarpið er ekki nógu markvisst eða er það vegna þess að markmið þess koma ekki alveg fram í lagatextanum?
Mig langar að vitna hér til umsagnar frá bæjarstjóra Seltjarnarnes. Það segir hér, með leyfi forseta:
„Í greinargerð sem fylgir lagafrumvarpinu er nánar fjallað um lækkunina í lið 3.5 á eftirfarandi hátt:“ — þ.e. lækkun sem nemur mismun á hámarksálagningu útsvars o.s.frv. —
„„Vannýting útsvars leiðir til lækkunar framlaga.“
Vannýting. Sem sagt, þeir sem ekki skattleggja sína íbúa alveg í topp, alveg í drep, eru að vannýta gjaldstofna. Ég orðaði það nú hér á fyrri árum mínum einhvern tímann að þar sem fólk á miðju og til hægri sér hóp af fólki nálgast sig þá sjá vinstri menn skattstofn. En þetta er bara eitt af því sem við þurfum að búa við.
Það segir hér áfram, með leyfi forseta:
„Í frumvarpinu er lögð til sú breyting í samræmi við tillögu starfshópsins, að nýti sveitarfélag ekki útsvarshlutfall að fullu, komi til skerðingar á framlögum úr Jöfnunarsjóði sem nemi vannýttum“ — aftur — „útsvarstekjum, þ.e. mismuni á útsvari miðað við hámarksálagningu og útsvari miðað við álagningarhlutfall sveitarfélags. Byggist tillagan á því sjónarmiði að þau sveitarfélög sem velja að nýta ekki álagningu útsvars að fullu fái ekki úthlutað framlögum úr Jöfnunarsjóði til að bæta slíkt tap.““
Það á sem sagt að gera alla jafna, alla jafn auma. Það segir hér áfram, með leyfi forseta:
„Að mati Seltjarnarnesbæjar er framangreint lagaákvæði óásættanlegt og einnig forsendur þess sem lýst er í greinargerðinni en þar kemur fram að tap hljótist af því ef sveitarfélag leggur ekki á hámarksútsvar. Hér er um einhvern ægilegan misskilning að ræða þar sem verið er að hvetja sveitarfélög til að herða skattheimtu og fullnýta skattstofna gagnvart þegnunum og gefið í skyn að sé það ekki gert hljótist af því tap. Það stenst engan veginn að tap hljótist af því ef sveitarfélög leggja ekki á hámarksútsvar.“
Þarna kemur aftur að því sem ég segi að þar sem venjulegt fólk sér hóp af fólki sjá vinstri menn skattstofn. En það segir líka í umsögn bæjarstjóra Seltjarnarness að hann vill meina það að þessi framsetning eins og hér er höfð fari í blóra við sjálfsstjórnarrétt sveitarfélaga sem er varinn í 78. gr. stjórnarskrárinnar. Þar kemur fram að sveitarfélög skuli sjálf ráða málefnum sínum eftir því sem lög ákveða. Þar kemur einnig fram að tekjustofnar sveitarfélaga skuli ákveðnir með lögum svo og réttur þeirra til að ákveða hvort og hvernig þeir eru nýttir. Það er þetta sem hefur slegið mig nokkuð við yfirlestur frumvarpsins og umsagnanna, að það virðist enn þannig að hér sé ríkisstjórnin að leggja fram vanreifað frumvarp. Ég gæti nefnt annað sem kemur örugglega hér til umræðu á næstunni, það er veiðigjaldafrumvarp, það er mjög vanreifað. Það sem er kannski alvarlegast í þessu öllu er það að hæstv. ríkisstjórn hefur í huga að þessi mál, stór mál eins og þetta mál hér, veiðigjaldafrumvarpið og fleiri, verði keyrð í gegnum þingið á lágmarkstíma. Við höfum allmörg dæmi um það hvernig mál geta snúist upp í andhverfu sína ef þau eru ekki sett fram og afgreidd vandlega og með íhuguðum vinnubrögðum.
Þetta mál er ekki svoleiðis vaxið þannig að það eina sem ég get í sjálfu sér gert núna, eftir að þetta liggur fyrir eins og þetta er núna hér, er að setja von mína á nefndina, að nefndin sem fær þetta frumvarp til umsagnar og yfirferðar leggist ofan í þetta. Ég hvet nefndina einnig til að fá þetta sveitarstjórnarfólk til fundar við sig þannig að það ágæta fólk þar sem vandamálin brenna á á hverjum degi í nærumhverfinu geti fengið að segja hug sinn um þetta frumvarp og hvernig hægt væri að bæta úr mestu ágöllunum á því. En aftur, það virðist ekki vera þannig að það sé nein samfella í því hvernig þetta frumvarp á að virka. Svo ég dragi aftur fram dæmið um Reykjanesbæ, þeir telja að þeir muni verða af rúmlega 200 milljónum ef þetta frumvarp fer fram eins og það er sett hér. Það mun setja viðkomandi sveitarfélag úr hagnaði, að vísu litlum, yfir í verulegt tap. Ég vil líka minnast á að það eru líklega einhverjar 15 milljónir sem lítið sveitarfélag eins og Dalabyggð missir af. Mjög vel rekið sveitarfélag, skilar hagnaði ár eftir ár, er núna að hugsa sér til hreyfings með að fara í sameiningarviðræður til að gera reksturinn hagkvæmari og sterkari fyrir íbúana. Að þetta séu kveðjurnar sem slíkt sveitarfélag fær, að það minnki tekjur þess úr jöfnunarsjóði um 15 milljónir — ég veit ekki alveg hvaða skilaboð þetta eru sem ríkisstjórnin er að senda út í sveitarfélögin. Ég bara næ því ekki alveg.
Ég er búinn að skoða líklega einhverjar 20 umsagnir um þetta mál og ég verð að segja að mikill meiri hluti þeirra lýsir yfir áhyggjum af því hvernig þetta mál er fram sett, ef ekki hreinum mótmælum við því hvernig málið er uppbyggt. Það eru næsta fá sveitarfélög hér sem ég hef alla vega kíkt á umsagnir frá sem kunna að meta þær breytingar sem hér eru boðaðar. Þess vegna verð ég að skora aftur á — best í sjálfu sér væri að taka þetta mál til baka, að ríkisstjórnin tæki þetta mál til sín og færi yfir það aftur og gæfi sér tíma til að koma þeim breytingum sem þau vilja á með, eins og maður segir, vitrænum vinnubrögðum en ekki þessu flaustri sem hér er boðað. Því segi ég aftur: Ég treysti á nefndina sem fær þetta mál til umfjöllunar og ég vænti þess að það verði tekin mjög gaumgæfileg skoðun á þessu máli sem í sjálfu sér gæti alveg leitt til þess að málið verði ekki til lykta leitt á þessu vorþingi. Ef ekki þá bara verður það þannig vegna þess að ríkisstjórnin getur ekki ætlast til þess að Alþingi taki — nú eru 25 þingdagar eftir, eitthvað slíkt — hér hvert stórmálið á fætur öðru og afgreiði það eins og einhver stimpilpúði. Það er bara ekki boðlegt. Það er ekki boðlegt að bjóða Alþingi upp á slík vinnubrögð og setja fram slíkar kröfur.
Hafandi fengið þessa kartöflu í skóinn í desember sem á eftir að endast okkur í versta falli í fjögur ár þá eigum við kannski von á því að þessi vinnubrögð muni halda áfram að vera eins og þau eru nú. Ég vona ekki en það er óttinn sem læðist að manni, að svo fari. Ég hvet til þess að það verði alla vega reynt allt sem hægt er til þess að taka mestu skavankana af þessu máli og þá mest með því að leita til sveitarfélaganna og forystumanna þeirra um góð ráð sem dugi til að vinda ofan af því hvernig þetta mál er búið.