156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[18:34]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Virðulegur forseti. Ég var kjörinn á Alþingi í lok nóvember og hafði þá ekki lagst í djúpar pælingar í kringum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, hafði heyrt þetta svona af og til í fjölmiðlum. En núna þegar frumvarp kom fram þá ákvað ég að demba mér svolítið í þetta um helgina og skoða málið með augum leikmanns. Það er ákveðin pólitík í þessu máli sem mér finnst þess virði að nefna og bið bara alla um að skoða innra með sér og mynda sér skoðun á því hvað fólki finnst um þetta mál, þennan hluta frumvarpsins sem ég ætla að fjalla um hér.

Þessu frumvarpi um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga er ætlað að bæta fjármögnun sveitarfélaga og jafna stöðu þeirra. Og eins og nafnið á þessu fyrirbæri, Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, gefur til kynna þá er þetta einhvers konar fyrirbæri til að jafna stöðuna, að þau sveitarfélög sem standa hallari fæti fái styrk frá þeim sveitarfélögum sem standa sterkar. Á yfirborðinu hljómar þetta vel, að tryggja fjárhagslegt öryggi allra sveitarfélaga, stórra sem smárra, þannig að það sé hægt að reka svona grunnþjónustu í sveitarfélögunum, skóla og málefni fatlaðra og aðra veigamikla grunnþjónustu. En þegar frumvarpið er skoðað koma í ljós ákveðnir pólitískir vinklar á því sem ég held að almenningur ætti að hugsa um hvort hann vilji standa fyrir. Þá segi ég það bara líka hér í pontu: Það er margt ágætt í þessu frumvarpi og ég þakka ráðherra fyrir að koma með það. En það sem ég vil beina sjónum mínum að er þessi hvatning eða nánast skylda sveitarfélaga til að hækka útsvar sitt upp í hámark. Þarna er í raun verið að taka svigrúm af sveitarfélögunum, svigrúm til útsvarsprósentu með því sem stendur í þessu frumvarpi.

Hér er verið að tala um skattahækkanir fyrir tugþúsundir íslenskra borgara. Það eru tugþúsundir sem lenda í því að þeirra sveitarfélag neyðist til að hækka sitt útsvar í botn. Það þýðir það að þá er hið opinbera komið með stærri hluta af köku hins vinnandi manns. Þetta eru þá beinar skattahækkanir á tugþúsundir venjulegra borgara. Auðvitað geta sveitarfélögin þá lækkað annan kostnað innan síns sveitarfélags ef þau þurfa ekki á þessum fjármunum að halda sem þessi aukna skattheimta tekur til, en þá er í raun verið að skattleggja almenning til að koma fé til minni hópa, einhverra sérhópa innan sveitarfélaganna. Til dæmis mætti lækka fasteignaskatta. Það þýðir það að þeir sem eiga fasteignir fá þá til baka en ekki aðrir, t.d. ekki leigjendur, þannig að þarna eru augljóslega sérhagsmunir teknir fram yfir almannahagsmuni. Það er ekki góð pólitík að mínu viti, bæði það að þvinga sveitarfélögin upp í hámarksútsvarsprósentu og þegar sveitarfélögin ætla mögulega að ráðstafa þessu aukna fé sem kemur inn vegna þess að allir eru skattlagðir hærra, þá fær mögulega sérútvalinn hópur þá lækkun til baka, ekki allir sem eru í sveitarfélaginu. Þarna er verið að skattleggja alla fyrir mögulega færri.

Það er skýrt kveðið á um það að ef sveitarfélög fullnýta ekki sína prósentu þá er þeim refsað að ári liðnu og fjármunir úr jöfnunarsjóði minnka. Þannig að það er alveg ljóst og það væri óábyrgt af sveitarstjórnum úti um land allt sem eru ekki með skattprósentuna í hámarki, að ef þeir hámarka ekki skattinn sinn þá verður sveitarfélagið af tekjum. Og hvernig ætla kjörnir fulltrúar þess sveitarfélags að svara því í sinn kjósendahóp að þeir hafi ekki hækkað útsvarið til að ná því fjármagni sem hægt er að ná út úr þessum jöfnunarsjóði? Það er einhvern veginn sérstakt þegar við erum að hvetja til ráðdeildar að þarna sé verið að taka þann hvata af sveitarfélögunum að reka sig þannig að þau geti boðið almenningi lægri útsvarsprósentu, lægri skatta. Það ætti að vera eftirsóknarvert fyrir öll sveitarfélög að geta boðið sem lægsta útsvarsprósentu þannig að fólk hefði mest með sín fjármál að gera sjálft.

Þetta er auðvitað flókið mál og talað um að það séu bara örfáir menn á Íslandi sem skilji þetta kerfi fullkomlega. En það hefur komið fram hér í umræðunni hjá hv. þingmönnum og hæstv. ráðherra að það eru mjög kostnaðarsamir gjaldaliðir hjá sveitarfélögunum. Þar hefur komið upp að rekstur t.d. grunnskólanna er þungur baggi á mörgum sveitarfélögum, oft stærsti útgjaldaliðurinn. Það er alveg með ólíkindum að stærsti útgjaldaliðurinn innan margra sveitarfélaga, sem er grunnskólinn — það er kannski ekkert skrýtið að hann sé mestu útgjöldin vegna þess að þetta er stór vinnustaður þar sem börn sveitarfélagsins koma saman og eru í tíu ár í skyldunámi, þannig að það er ekkert skrýtið að þetta kosti peninga. En það sem er skrýtið er að þetta er líklegast eini málaflokkurinn þar sem sveitarfélögin hafa ekki hugmynd um hvar málaflokkurinn stendur, hvaða árangur er út úr þessum málaflokki. Sveitarfélögin sjá hvernig snjómoksturinn gengur. Þau geta séð hvernig fötluðum gengur, hvað búið er að byggja margar íbúðir, hvernig gatnagerð gengur, innviðir. Það er hægt að skoða þetta allt saman. En í þessum útgjaldafrekasta lið sveitarfélaganna, sem eru menntamálin, virðist lítill sem enginn áhugi vera fyrir því að athuga hvernig staðan er og það er bara óábyrg meðferð fjármuna.

Sveitarfélög missa framlög ef þau halda í lágt útsvar eða lækka útsvar. Það skapar bara kerfisbundna hvata til að hækka útsvar til jafns um allt land, óháð raunverulegri þörf, þjónustustigi eða stefnu þeirra sem eru kjörnir fulltrúar í þessum sveitarfélögum. Sveitarfélög, hvort sem þau eru í jákvæðri fjárhagsstöðu eða ekki, munu ekki lækka útsvarið vegna þess að þá eiga þau það á hættu að tapa fjármunum úr jöfnunarsjóði og það væri óábyrg framkvæmd hjá kjörnum fulltrúum hvers sveitarfélags að hafa útsvarið ekki í hámarki. Þetta er afleiðingin fyrir íbúa landsins.

En það eru fjölmörg sveitarfélög sem eru ekki með útsvarið í botni. Og svo ég ítreki það þá eru þetta tugþúsundir íbúa sem munu hækka skattana. Tugþúsundir. Sem sagt allir íbúar alls staðar munu borga hámarksútsvar sama hversu hagkvæmur rekstur sveitarfélagsins er. Það er í raun kannski minni hvati til að reka sveitarfélagið á hagkvæman hátt og að kanna hvort sveitarfélag gæti mögulega boðið upp á betri þjónustu með lægri sköttum, lokkað til sín fólk, boðið upp á góða aðstöðu með lágu útsvari. En með þessu er þessi pólitíska ákvörðun tekin, að neyða íbúana til að sætta sig við hærri skattbyrði. Það skerðir lýðræðislegt val við sveitarstjórnarkosningar. Sveitarstjórnarmenn geta í rauninni ekki boðið upp á það í kosningabaráttu að þeir vilji standa fyrir lægri sköttum innan sveitarfélagsins, lægra útsvari, vegna þess að eins og ég hef sagt áður væri það óábyrgt hjá hverjum og einum fulltrúa að leggja það til að útsvarið yrði lækkað vegna þess að þá er sveitarfélögunum refsað fjárhagslega.

Afleiðingarnar fyrir sveitarfélögin, það sem gæti gerst er að nýsköpun gæti minnkað og það væri ekki hægt eins og hefur oft gerst, sérstaklega úti á landi, að sveitarfélög sem standa ágætlega væru tilbúin til að vera með lægri útsvarsprósentu til að lokka til sín fólk og auka þá byggðafestu í landinu. Þetta gæti rýrt það, eða gerir það örugglega vegna þess að þegar skattprósentan verður sú sama alls staðar minnkar það sveigjanleika sveitarfélaganna til að aðlaga þjónustu og tekjur að sérstökum aðstæðum. Sveitarfélögin eru ólík. Sum hafa miklar náttúruauðlindir, önnur mikið af ungu fólki, önnur háan meðalaldur, en svona samræmdur útsvarsskattur vinnur gegn þessari fjölbreytni. Eins og ég segi þá dregur þetta frumvarp úr sveigjanleika þeirra og fletur út rekstrarumhverfi sveitarfélaganna líkt og þau væru öll samræmd með sömu þjónustuþarfir og tekjumöguleika. Við vitum hins vegar öll að sveitirnar eru ólíkar. Það er allt annað að tala um sveitarfélög á Vestfjörðum, þau glíma við aðrar áskoranir heldur en sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarfélög á Suðurlandi eru með mikið af ferðaþjónustu á meðan sveitarfélög á Norðurlandi eru meira í sjávarútvegi. Þannig að það að einhvern veginn fletja þetta út í einn ríkisskatt, eina prósentu, er ekki gott fyrir fjölbreytileikann.

Þetta fer vonandi til umfjöllunar í nefndinni með þessa fjárhagslegu refsingu við það að lækka útsvar, að lægri skattar séu einhvers konar synd og dyggðaleysi. Það er kannski einkennandi fyrir þessa ríkisstjórn að auka skatta en þetta eru auknir skattar á almenning, sérhagsmunir gegn almannahagsmunum.

Þegar sveitarfélög missa þennan sveigjanleika þá missa þau hvata til hagkvæmni, umbóta og nýsköpunar og við hættum að umbuna sveitarfélögum sem standa sig vel, því að það er staðreynd að sveitarfélög eru misvel rekin. Þau eru ekki öll rekin nákvæmlega eins. Þegar við erum komin með arm ríkisskattsins yfir allt og alla þá deyfir það þessa hugsun að reka sveitarfélagið vel. Og þegar kjörnir fulltrúar geta ekki verið dregnir til ábyrgðar og spurðir: Hvers vegna lækkið þið ekki útsvarsprósentuna? Þegar þessi spurning er í raun ekki lengur viðeigandi vegna þess að útsvarsprósentan er föst í hámarki, þá klippir það sveitarstjórnarmenn að ákveðnu leyti úr þeirri snöru að þurfa að svara þessum spurningum. Lækkið útsvar. Sú spurning á í raun ekki við lengur.

Þetta er umhugsunarvert. Þetta er það sem ég sem leikmaður hef svona rekið augun í og vonandi er ég of svartsýnn en ég er ekki viss. Við erum með smærri sveitarfélög sem standa sterkt og það að þau geti ekki boðið íbúum sínum lægra útsvar, boðið fólki upp á betri kjör, að fólk hafi meira um sín fjármál að segja, ég held að enginn vilji þannig kerfi. Við verðum að átta okkur á því að þó að sveitarfélögin standi misvel þá á jöfnunarsjóðurinn að virka þannig að þeim sveitarfélögum sem standa höllustum fæti sé hjálpað og hinum síður. Svo þarf bara að hugsa þennan jöfnunarsjóð algjörlega — mér finnst vanta inn í þetta frumvarp hvata til sameininga vegna þess að við erum með sveitarfélög sem eru varla rekstrarhæf, þau hafa miklar tekjur, stóran hluta sinna tekna frá jöfnunarsjóðnum. Það er eitthvað sem þyrfti að skoða, að hafa sterka hvata til þess að fá þessi sveitarfélög til að sameinast og vera rekstrarhæfari einingar. Það er öllum til hagsbóta að menn vinni saman en séu ekki sundraðir. Þannig að ég vona bara að nefndin fari vel yfir þetta mál (Forseti hringir.) og skoði vel með þessa skattprósentu, að við séum ekki að skattleggja tugþúsundir í þágu fárra.