Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég verð nú að segja að ég sakna hæstv. ráðherra hér úr salnum. Honum hafði verið hrósað fyrr í umræðunni fyrir að hafa tekið þátt í umræðunni og vera viðstaddur. Ég vona að hann sé hér í hliðarherbergi að hlusta.
Ég ætla að fá að taka til máls í þessu máli því að þetta hefur brunnið á mér mjög lengi. Fyrst skal það segja að hér hafa fallið í dag orð eins og að fullnýta tekjumöguleika sína og leyfa sér að innheimta ekki fullt útsvar, og þá einhvern veginn sé minna eftir fyrir hina. Þetta held ég að lýsi alveg bara snarrangri hugmyndafræði um rekstur hins opinbera og það gríðarlega mikilvæga stjórnsýslustig sem sveitarstjórnarstigið er, að löggjafinn og aðilar sem kosnir eru hérna inn á Alþingi Íslendinga leyfi sér að tala með þessum hætti til þeirra sem kosnir eru af íbúunum í sínu sveitarfélagi, að bæjarfulltrúar á Seltjarnarnesi eða í Garðabæ eða Kópavogi leyfi sér að innheimta ekki fullt útsvar, leyfi sér að ganga ekki lengra ofan í vasa íbúa sinna.
Virðulegur forseti. Þessa hugmyndafræði sem birtist í þessu orðalagi get ég engan veginn tekið undir. Ég hefði svo sem að einhverju leyti átt von á þessu frá Samfylkingunni og einhvers konar vinstri flokkum. Reyndar hefur Viðreisn ekki enn tekið til máls í þessu máli og ég sé að það er eingöngu einn hv. þingmaður frá þingflokki Viðreisnar sem hefur setið hérna undir þeirri umræðu en það verður mjög áhugavert að vita hvort flokkurinn sem hefur viljað kenna sig við frelsi og talaði fyrir því að hækka ekki skatta ætli að styðja áframhaldandi skattahækkunarferli þessarar ríkisstjórnar með því að samþykkja þetta frumvarp hér óbreytt.
Virðulegur forseti. Eins og ég hef komið inn á hér áður í andsvörum þá er regluverkið í kringum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga flókið. Þetta er í dag ekki í sérstökum lagabálki og ég fagna því að frumvarp eins og þetta sé komið fram. Mér finnst margt í þessu frumvarpi alveg ágætt. Ég veit að það byggist á ofboðslega mikilli vinnu, þverpólitískri vinnu kjörinna fulltrúa víða af landinu frá mismunandi stjórnmálaöflum. Mér finnst alveg sanngjarnt að það sé til eitthvað sem heitir Jöfnunarsjóður vegna þess að mér finnst eðlilegt að við jöfnum stöðu sveitarfélaga út frá þeirri útgjaldaþörf sem þau hafa. Mér finnst sanngjarnt að sveitarfélag, ef ég tek sem dæmi Skagafjörð, sem væri með óvenjumarga íbúa sem glíma við einhvers konar fötlun fái hærra framlag heldur en annað sveitarfélag sem er með örfáa. Mér finnst líka eðlilegt að við greiðum með leikskólabörnum og grunnskólabörnum, börnum af erlendum uppruna sem þurfa aukna kennslu, ekkert óeðlilegt við það, enda gerir þetta reiknilíkan sem hér er verið að leggja til ráð fyrir því. Það er reyndar líka gert eins og þetta er framkvæmt í dag. En það að segja að kjörnir fulltrúar, aðilar sem eru kosnir af íbúum í sínu sveitarfélagi og leyfa sér að standa sig svo vel í rekstri og leyfa sér að eiga þá pólitík að vilja taka minna frá vinnandi fólki í sínu sveitarfélagi — að það eigi að refsa þeim og þá eigi ekki að greiða með fötluðum í því sveitarfélagi eða leikskólabörnum í því sveitarfélagi, virðulegur forseti, mér finnst þessi orðræða algerlega galin.
Ég ætla aðeins að fá að renna yfir greinar frumvarpsins. Í 1. gr. er talað um hlutverk:
„Hlutverk Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er að jafna mismunandi útgjaldaþörf“ — sem betur fer er það fyrsta orðið, mismunandi útgjaldaþörf, því að við vitum að hún er mismunandi hjá sveitarfélögum og ég tek undir það, svo bætist við: „og skatttekjur sveitarfélaga …“
Ég get meira að segja líka tekið undir það. Það er bara alveg sanngjarnt að það sé að einhverju leyti horft til þess að lítil sveitarfélög úti á landi hafi minni tekjumöguleika heldur en stærri og öflugri sveitarfélög. Í mínum huga má alveg horfa til þess og ég get ekki betur séð en að það sé nákvæmlega það sem verið er að gera hér í reiknilíkaninu í 6. gr., um almennu jöfnunarframlögin, um grundvöll jöfnunarframlaganna og í 8. gr. um jöfnun vegna mismunandi tekjuöflunarmöguleika og stærðarhagkvæmni og ég hef ekkert við þetta að athuga. Það er meira að segja svona í fleiri greinum.
En í 3. mgr. 14. gr. segir, með leyfi forseta:
„Ef sveitarfélag fullnýtir ekki heimild sína til álagningar útsvars skal lækka framlög Jöfnunarsjóðs árið eftir til viðkomandi sveitarfélags …“
Þetta get ég ekki tekið undir. Þetta er inni í reikniformúlunni. Þegar verið er að reikna út stærðarhagkvæmnina og hagkvæmniútreikningana þá er gert ráð fyrir því að sveitarfélögin séu að fullnýta útsvarið sitt og ef þau eru ekki að gera það þá fái þau þar af leiðandi minna, en að refsa þeim svo aukalega með því að setja inn grein sem tekur á þessu er ekkert annað en skattahækkun. Það er hvati frá löggjafanum til sveitarfélaga í landinu um að þau hækki álögur á íbúa sína. Það er ekkert annað.
Virðulegur forseti. Þess vegna hef ég lagt fram breytingartillögu á þessu frumvarpi sem liggur hér fyrir og ég vona að hv. þingmenn kynni sér og ég vænti þess að hv. umhverfis- og samgöngunefnd taki hana til umfjöllunar samhliða þessu frumvarpi og ég vænti þess líka að umsagnaraðilar sem um þetta mál skila umsögnum horfi til þess. Ég vil minna á það, af því að við höfum rætt söguna hérna, að það er margoft búið að reyna að breyta þessu regluverki, aðlaga það, taka þessa plástra, einfalda, gera það gegnsærra og ég tek undir öll þau markmið. Ég held að við náum þeim vel fram þrátt fyrir mína breytingartillögu, tökum bara út þetta ákvæði.
Þá vil ég minna á að í frumvarpinu eins og það kom fram hér á þinginu haustið 2023, virðulegur forseti, ætla ég leyfa mér að segja frekar en 2024, þá var þetta ákvæði ekki inni. Ég átta mig á því að þetta kom út úr skýrslu starfshóps og við þekkjum umræðuna sem varð í kjölfar þeirrar skýrslu. Við vitum líka að það var verið að togast á og semja um einhverja sameiginlega niðurstöðu í þeim starfshópi. En það upplýsist líka hér að Sjálfstæðisflokkurinn hleypti aldrei út úr sínum þingflokki frumvarpi með þessari 3. mgr. eins og hún liggur fyrir í þessu frumvarpi. Aftur á móti gerði hæstv. ráðherra þá, Sigurður Ingi Jóhannsson, breytingar og tók það út. Við eigum það frumvarp til á þingvefnum með greinargerðinni. Við áttum okkur á því í öllum gögnum frá ráðuneytinu að við getum alveg náð þessu sama markmiði fram án þess að ganga svona hrikalega á sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaganna og raunverulega hvetja þau til að hækka álögur á íbúa sína. Það er hægt að ná þessu fram. Það að halda því hér fram í ræðum að sveitarfélög væru með einhverjum hætti að taka frá öðrum verri settum sveitarfélögum og halda það virkilega að þessi breyting og þetta ákvæði muni gera það að verkum að það verði meira inni í jöfnunarsjóðnum til að spila út til þá minni sveitarfélaga eða sveitarfélaga sem eru vel rekin er líka bara algjör fásinna. Ef við horfum á þessi ákvæði þá áttum við okkur líka alveg á því hvaða áhrif það myndi hafa. Það myndi hafa þessi áhrif. Það myndi hafa þau áhrif að sveitarstjórnirnar myndu neyðast til að hækka útsvar sitt, því ekki bara er það tekið fyrir í reiknilíkaninu heldur líka extra refsing á því að hugsa: Heyrðu, já, kannski ætla ég að leyfa fólki að halda eins miklu af sínu sjálfsaflafé og mögulegt er.
Virðulegur forseti. Það að heyra hvernig hæstv. ráðherra, sem ég sakna enn hér úr salnum, hefur til að mynda talað um sveitarfélög í mínu kjördæmi sérstaklega — það er eins og að það sé verið að leggja hér ákveðin sveitarfélög í einelti. Ég ætla bara að nefna að það hefur sérstaklega verið talað um Seltjarnarnes og Garðabæ í þeim efnum. Sveitarfélögin í Suðvesturkjördæmi hafa mótmælt þessari aðgerð hérna. Það er í rauninni ótrúlegt og ég ætla að vona bara að íbúar í þessum sveitarfélögum átti sig á því fulltrúar hvaða flokka hafa verið að taka til máls og tala með þessum hætti því þeir bera greinilega enga virðingu fyrir íbúum þessara sveitarfélaga sem kosið hafa á fjögurra ára fresti í áratug stjórnmálamenn og stjórnmálaöfl sem hafa lagt áherslu á það að hafa álögur á íbúa eins litlar og mögulegt er. Á sama tíma reyndar er ágætt að geta þess að þessi sveitarfélög hafa líka verið að veita eina bestu þjónustuna sem þekkist á landinu. Hér hefur ánægja íbúa á Seltjarnarnesi, Garðabæ, Kópavogi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ verið mun meiri heldur en til að mynda íbúa í Reykjavík og miðað við mörg önnur sveitarfélög á landinu. Þannig að þessi orðræða sem hefur verið hér í dag varðandi þessi sveitarfélög er til háborinnar skammar.
Virðulegur forseti. Eins og ég hef farið yfir þá lít ég svo á að þær greinar hér sem fjalla um þessa jöfnun séu að taka annars vegar á útgjaldaþörfinni og hins vegar tekjunum. Það er þess vegna gert ráð fyrir því inni í reiknilíkaninu að sveitarfélögin séu að fullnýta útsvarið sitt, þannig að það er ekki þannig að sveitarfélög séu einhvern veginn að slæðast inn í einhverja sameiginlega sjóði og taka meira en þeim ber vegna þess að þau taki minni álögur. Það er algerlega röng hugmyndafræði að hugsa þetta með þeim hætti.
Ég hef líka verið að reyna, virðulegur forseti, að lesa saman þessi frumvörp, þ.e. frumvarpið eins og það var lagt fram síðast og það sem við erum með hér til umræðu. Þau eru mjög keimlík. Ég saknaði þess reyndar að heyra ekki ástæðuna fyrir því að það væri verið að breyta ákveðnum prósentum. Ég nefni t.d. varðandi 2. gr. að þá er verið að hækka prósentuna varðandi málefni fatlaðra. Ég ætla ekki að gera athugasemd við það en ég velti því fyrir mér hvað það er sem orsakaði og miðað við greinargerðina þá er eins og það séu einna helst umsagnir sem bárust um málið síðast. En það er líka verið að breyta stærðarflokkunum. Í fyrra frumvarpi var talað um meðalstór sveitarfélög á bilinu 2.000–7.000 og svo fjölmennari sveitarfélög yfir 7.000 en núna er það 2.000–10.000 og þeir sem eru yfir 10.000 og mér finnst það áhugavert og velti fyrir mér hvað nákvæmlega réð því.
Það eru fleiri svona prósentur sem er aðeins breytt en svo fannst mér líka reyndar áhugaverð 16. gr. um ofgreidd og vangreidd framlög. Ég velti fyrir mér hvort ríkisstjórnin hefði kannski lært einmitt lexíuna að það er mikilvægt að það sé skýrt í lögunum svona út af allt öðru máli, og þá er ég að vísa í styrki til stjórnmálaflokka. En það virðist vera alveg ný grein hér inni og bara gott en það þýðir þá að það er hægt að krefjast endurgreiðslu ef það hafa verið ofgreidd framlög til sveitarfélaga úr jöfnunarsjóðnum.
Það er gott að rifja upp stærðfræðikunnáttu þegar maður les þessa greinargerð og þessa tekjuhagkvæmniútreikninga og einmitt kannski átti maður að læra betur tegrun og heildun og allt þetta, en þetta byggist á flóknu kerfi. Þetta er það sem við erum að segja, það er verið að taka tillit til allra þessara þátta í kerfinu. Það er alger óþarfi að koma með aukagrein þarna inn og ætla að refsa sveitarfélögum aftur fyrir að reka sig hagkvæmt og taka aðeins minna af íbúunum sínum.
Virðulegur forseti. Ég held að ég láti þetta gott heita og ítreka aftur það sem ég hef sagt hér: Það er sanngjarnt að jafna, þá fyrst og fremst í mínum huga að jafna út frá útgjaldaþörfinni. Það segir einmitt í 1. gr., í markmiðum þessara laga, að það sé markmiðið. Það má líka horfa á tekjuhliðina og það er hér inni í reiknilíkaninu. En það að löggjafinn ætli sér að ráðast inn á sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga og þröngva þeim út í það eða ýta þeim til að hækka álögur á íbúa er aðgerð sem ég get ekki stutt. Ég vona að hv. umhverfis- og samgöngunefnd horfi til breytingartillögu minnar sem tekur þetta einfaldlega út því það er ekkert mál að ná fram mikilvægum breytingum á jöfnunarsjóðnum og auka gegnsæi á þessu mikilvæga regluverki okkar án þess að fara þessa leið.
Virðulegur forseti. Ég trúi því ekki að alla vega allir þeir flokkar sem sitja í þessari ríkisstjórn ætli enn og aftur að taka undir skattahækkunarfrumvörp sem koma frá þessari ríkisstjórn.