156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[19:05]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir aldeilis prýðilega ræðu. Ég veit að hún hefur langa reynslu að baki úr sveitarstjórn áður en hún settist hér á hið háa Alþingi og ég heyrði líka að hún talaði í sjálfu sér á ekki ólíkum nótum og ég hafði gert sjálfur, þ.e. hnaut um það að ríkið sé að hlutast til um hvernig einstök sveitarfélög haga sinni skattheimtu með hótunum — með hótunum. Þetta að hóta mönnum svona með efnahagslegum hætti tíðkast sums staðar á Suður–Ítalíu en það hefur ekki tíðkast í sjálfu sér í samskiptum opinberra aðila á Íslandi. Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann, m.a. vegna þess að mér finnst sjálfum að með því hvernig þetta mál er sett fram af hálfu ríkisstjórnarinnar þá sé ríkisstjórnin annaðhvort að reyna eða að efna til átaka við sveitarfélögin algjörlega að óþörfu. Ég hnýt um það líka að þetta mál skuli ekki vera betur úr garði gert heldur en það að það virðist ekki skipta öllu máli hvort sveitarfélagið er stórt eða lítið, hvar það er staðsett á landinu. Sveitarfélög virðast vera að fá minna úr sveitarsjóði jafnvel með útsvarið í toppi. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvaða kraftar eru inni í þessu frumvarpi sem gera það að völdum. En mig langaði til að spyrja hv. þingmann hvort hún sé sammála mér í því að ríkið sé í raun og veru að efna til átaka við sveitarfélögin með því að setja málið svona fram.