156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[19:07]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vil segja það að ég held að starfshópurinn sem vann grunninn að þessu frumvarpi á sínum tíma og að þessum reiknireglum hafi lagt sig allan fram og þar hafi verið aðilar sem þekkja vel til reksturs sveitarfélaga, þannig að það eru í grunninn held ég góðar hugmyndir sem þarna eru. Ég hef setið nokkra fundi í stjórn jöfnunarsjóðs eða í ráðgjafahópi jöfnunarsjóðs, eða hvað það heitir nú, var þar varamaður um tíma og sat þó nokkra fundi og átta mig alveg á því hvað regluverkið í dag er plástrað. Það er ofboðslega plástrað. Þetta hefur einhvern veginn í gegnum tíðina verið þannig að ríkið þarf að redda einhverjum sveitarfélögum; setjum aðeins meiri pening inn í jöfnunarsjóð og setjum eitthvert eitt ákvæði í viðbót hér og annað þess háttar, og svo eins og við höfum komið inn á hérna í umræðunni í dag varðandi grunnskólana og annað slíkt. Þannig að í grunninn held ég að hugmyndafræðin á bak við þetta frumvarp hérna sé ágæt. Aftur á móti er ég algjörlega sammála hv. þingmanni, ég held að þetta sé einmitt hótun, þessi 3. mgr. 14. gr. Það að ætla að taka þá af þeim sveitarfélögum sem eru vel rekin og vilja umbuna sínum íbúum með því að taka minna úr þeirra vasa held ég að sé algjörlega vanhugsað og vanreifað, því að í útgjaldaforminu er líka gert ráð fyrir þessum þáttum. Ég held að þetta sé algerlega vanreifað og tek undir það með hv. þingmanni að ég held að það sé óskynsamlegt með öllu.

Ég bendi líka á það, virðulegur forseti, að við höfum verið að ræða þetta fasteignaskattsframlag sem er verið að taka út núna vegna þess að það hefur verið talið skattahvetjandi. Eins og frumvarpið liggur fyrir hér óbreytt erum við í rauninni að taka út einn skattahvetjandi þáttinn en setja bara annan inn sem hefur miklu, miklu, miklu meiri áhrif sem er hækkun á útsvari.