156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[19:09]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir þetta andsvar og ég er glaður yfir því að við skulum vera sammála um það að þetta mál sé illa úr garði gert. Mig langar líka til að spyrja hv. þingmann um atriði sem ég gerði að umtalsefni í ræðu minni fyrr. Það er það að mér líkar hreint ekki hvernig málum er hent inn í þingið á síðustu stundu og ætlast til þess að þingheimur samþykki þau orðalaust. Mál sem við vitum að munu hafa áhrif töluvert langt inn í framtíðina nema einhver betri stjórn komi hér að völdum og snúi af þessari skattahækkunarbraut sem þessi ríkisstjórn er á, og vonandi gerist það nú fyrr en síðar. En það breytir ekki því að það er vanvirðing við þingið að mínu áliti að koma með slík mál hingað inn akkúrat á síðustu stundu og ætlast til að þeim sé flaustrað hér í gegn. Þannig að mig langar til að spyrja hv. þingmann að því hvort hún sé sammála mér í því að ríkisstjórnin sé í raun og veru að reyna að gera lítið úr þinginu með því að að hafa mál þannig tilbúin sem koma fram frá hennar hendi núna á vordögum.

Mig langar líka til að spyrja hv. þingmann um þetta fasteignaatriði í frumvarpinu: Hvar lendir, hvað á ég að segja, hagurinn af því helst, hjá hvaða sveitarfélögum, að dómi hv. þingmanns?