156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[19:14]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegi forseti. Hér ræðum við frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir sína framsögu og sömuleiðis að hafa verið hér með okkur stærstan hluta af deginum. Eitthvað hefur nú sigið á ógæfuhliðina þegar leið á daginn þar sem hæstv. ráðherra hefur sennilega þurft að sinna einhverjum öðrum verkefnum en gott og vel.

Umræðan í dag hefur verið um margt ágæt og margt gott komið fram. Í grunninn er frumvarpið sjálft og sú hugmyndafræði sem það byggir á um margt ágætt eins og það stendur í dag. En það er alltaf hægt að gera betur og bæta hlutina og það er áhugavert að gefa sér tíma til að renna yfir þær umsagnir sem bárust um málið þegar það var í samráðsgátt í vetur. Vissulega sýnist sitt hverjum hvað það varðar en mig langar að staldra við, virðulegur forseti, sveitarfélög, ég vil ekki nota orðið jaðarsveitarfélög, það eru þá sveitarfélög þar sem eru fáir íbúar og gríðarlegt landflæmi undir og aðstæður eru um margt sérstakar frá sjónarhóli kannski þeirra sem búa á suðvesturhorninu t.d. þar sem stutt er í alla þjónustu, þar sem er stutt að ná í allt sem þú þarft, það er þægilegt að komast um o.s.frv. Við erum að tala um sveitarfélög þar sem áður fyrr voru kannski sex, átta, níu hreppar.

Ef við tölum um Dalabyggð t.d. minnir mig að Dalabyggð sé komin úr einhverjum átta hreppum. Nú horfi ég á hv. 1. þingmann kjördæmisins og vonast til að fá viðbrögð við þessu en þau láta nú standa á sér. Það er mjög áhugavert að lesa þá góðu umsögn, sérstaklega í ljósi þess að íbúar þessa landmikla sveitarfélags eru 660. Í þessu ágæta sveitarfélagi búa 50% íbúanna í dreifbýli. Stærstur hluti þeirra sem búa í dreifbýli byggir afkomu sína á sauðfjárrækt og það segir sig alveg sjálft að tekjur sveitarfélagsins, útsvarið, eru ekki neitt til að hrópa húrra fyrir enda er Dalabyggð í mælaborði Byggðastofnunar sennilega á botninum hvað það varðar. Þrátt fyrir það, miðað við þá nýju reiknireglu sem um ræðir hér, þá er það nú þannig að Dalabyggð lækkar um 11 milljónir. — Mikið fór ég nú nálægt því, þetta voru níu sveitarfélög, skaut ég á, sé ég á hv. 1. þm. Norðvest., Ólafi Adolfssyni. En nóg um það. — Það er þrátt fyrir að þarna séum við að tala um sveitarfélag við mjög sérstakar aðstæður, gríðarlegt landflæmi. Það eru malarvegir, það er gríðarlega langt að fara með börn í skóla o.s.frv. Við erum að horfa til þess að við viljum að íbúar þessa lands búi við jöfn skilyrði. Það er tilgangur þessa frumvarps. Það er eitthvað merkilegt við þann útreikning þegar sveitarfélag eins og Dalabyggð lækkar um einhverjar 11 milljónir. Það er eitthvað þar á bak við sem svo sem ég átta mig ekki á hvað er.

Ef við færum okkur síðan norður á bóginn þá stöldrum við næst við Norðurþing sem er áhugaverð og góð umsögn því að sveitarstjórn þar fagnar því að fram sé komið þetta frumvarp, fagnar því að það sé farið af stað í því að endurskoða lög um jöfnunarsjóð og það sé endurreiknað þrátt fyrir að sveitarfélagið lækki um 111 milljónir í framlögum frá jöfnunarsjóði milli ára. Að sama skapi er sveitarstjórn Norðurþings með ákveðnar athugasemdir til þingsins sem mjög vert er að athuga. Það þarf að fara mjög gaumgæfilega yfir það, t.d. þegar kemur að höfuðborgarálagi en hér fyrr í dag var talað mikið um það. Norðurþing bendir t.d. á hvort það væri ekki heppilegt að Húsavík t.d. fengi ákveðið álag sem þjónustumiðstöð fyrir Suður-Þingeyjarsýslu og allar sveitirnar austan við Húsavík og alveg austur á Bakkafjörð. Við þurfum að horfa á þetta svona, í miklu breiðara samhengi heldur en mér finnst við vera að gera með þessu ágæta frumvarpi sem við höfum haft hér til umfjöllunar í dag því að tilgangurinn er sá, miðað við 1. gr. þessa frumvarps, að við ætlum að reyna að jafna búsetuskilyrði og tækifæri íbúa þessa lands. Þá gerum við það með ákveðnum fjárframlögum til að jafna það sem við þurfum á að halda.

Ef við höldum áfram er mjög áhugavert að fara yfir þessar umsagnir því að yfirleitt sjá menn nú betur með sínu auga þegar þú stendur heima á hól og horfir í kringum þig og hvað hefur áhrif á þitt nærumhverfi. Hv. umhverfis- og samgöngunefnd er vandi á höndum þegar kemur að því að vinna í málinu því að umsagnirnar bara í samráðsgátt eru 38 og ég á frekar von á því að það komi mun meira af umsögnum til nefndarinnar þegar nefndin tekur málið til kostanna og fer að vinna í því. Og ég tek undir með hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni hvað það varðar að ég hef áhyggjur af þeim stutta tíma sem fram undan er hér í þinginu vegna þess að þetta er gríðarmikið og stórt frumvarp og það þarf mikla umræðu og þarf mikla yfirlegu. Ég held að það sé alveg ljóst að hugur allra sem að þessu koma og okkar sem erum hér á hinu háa Alþingi er að við viljum skapa þau tækifæri, þ.e. að allir íbúar þessa lands hafi svona þokkalega jöfn tækifæri á við það sem gengur og gerist alls staðar í kring, í nágrannasveitarfélögum o.s.frv. Vissulega eru settar hér upp ákveðnar sviðsmyndir sem gengið er út frá og ég ætla ekkert að draga fjöður yfir það að mér finnst vera gengið frekar vel fram í því hvað það varðar. Það eru samt alltaf þegar við ætlum að fara í þessa hluti ákveðin sveitarfélög sem verða eftir. Ef við horfum t.d. á Langanesbyggð eða ef við förum í Þingeyjarsveit, það er náttúrlega gríðarlega landmikið sveitarfélag. Þingeyjarsveit er að reka tvo grunnskóla. Síðan er menntaskóli sömuleiðis á Laugum. Íbúar sveitarfélagsins eru að sækja vinnu vítt og breitt, til Akureyrar, til Húsavíkur o.s.frv.

Þá komum við að því sem snýr að ákveðnum hluta sem eru útgjaldastuðlarnir. Við komum í þá þegar við förum að horfa á snjómoksturinn t.d. Þar horfir málið töluvert öðruvísi við því þar er talað um kílómetrafjölda en ekki varðandi það sem snýr að því hvort yfir höfuð sé snjór á svæðinu eða ekki og við vitum það alveg að það er verulega breytilegt á milli landshluta. Þótt ekki sé langt á milli á Norðurlandi þá er gríðarlegur munur á milli sveitarfélaga og innan sveitarfélags á því hvort það sé snjóþungt eða ekki. Og fyrst við erum nú komin í nafla alheimsins í Suður-Þingeyjarsýslu þá vill nú þannig til að þar getur snjóað og það allhraustlega og vegasamgöngur eru nú kannski ekki upp á marga fiska vítt og breitt um þá ágætu sýslu og í t.d. í Þingeyjarsveit, ef við fjöllum um hana, eru malarvegir, gríðarlega snjóþungir. Við viljum samt horfa til þess að fólk geti búið þarna. Ég kann ekki mörg dæmi þess að sveitarfélög eins og Þingeyjarsveit borgi mokstur á heimreiðum tvisvar eða þrisvar í viku alls staðar í sínu sveitarfélagi og þetta eru engar smá vegalengdir sem verið er að moka á kostnað sveitarfélagsins. Þetta er sveitarfélagið að taka á sig til að reyna að bjóða sínum íbúum upp á ákveðna þjónustu. En það virðist ekki vera tekið tillit til þess þegar kemur að þessum útgjaldastuðli. Þetta eru gríðarlegir fjármunir fyrir fámenn en gríðarlega landstór sveitarfélög sem t.d. eru í snjómokstri. Við þekkjum alveg umræðuna um að það fer allt á hliðina á sumum þéttbýlissvæðum þegar kemur svona ótímabær snjór, sem við köllum föl á sumum stöðum. Útgjaldahlið sveitarfélaganna veltur alveg ótrúlega mikið á því hvernig t.d. viðrar og það hefur aldrei og verður aldrei neitt sérstaklega arðbært að moka snjó en þetta er hluti af því sem þarf að vera fyrir hendi. Mér finnst skorta á það í þessu ágæta frumvarpi að horft sé til þess að það þýðir ekki að horfa eingöngu á kílómetrafjölda heldur verður að horfa til þess hvernig snjóalög eru. Þær tölur eru til og það verður að vera einhver skynsemi í því þegar þarna er komið.

Að lokum, virðulegur forseti, vil ég taka undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur varðandi breytingartillögu hennar sem snýr að 3.–5. mgr. 14. gr., mér finnst það vera ansi langt gengið að vera að traðka á sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga þegar kemur að því að ef menn eru ekki að fara alveg upp í þakið varðandi útsvarið, varðandi skattlagningu íbúanna, að þá sé farið í það að reyna að draga úr framlögum úr jöfnunarsjóði. Það er mjög æskilegt ef sveitarfélög geta haft hlutina þannig að þau geti lækkað álögur á íbúa. Við horfum samt til þess að við erum að reyna að jafna aðstöðumun þeirra sem búa í þessu landi og það er gríðarlega öflugt og gott tæki hvað það varðar. En við eigum því miður, virðulegi forseti, alveg óskaplega langt í land hvað það varðar að reyna að jafna aðstöðumun þeirra sem búa vítt og breitt um landið. Það er gríðarlegt verkefni og það leysum við ekki eingöngu með þessu ágæta frumvarpi sem hér er. Aftur á móti er þetta frumvarp gott skref og ég held að það verði gott fyrir hv. umhverfis- og samgöngunefnd að takast á við verkefnið og sömuleiðis að kalla til alla þá sem koma til með að hafa skoðun á málinu og þá sérstaklega þá sem um ræðir, þ.e. sveitarfélögin í landinu, vegna þess að tilgangur þessa frumvarps er að jafna skilyrði til búsetu vítt og breitt um landið.