Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir hans yfirferð á þessu yfirgripsmikla máli. Þetta er ekki einfalt mál og sýnist sitt hverjum. En ég get alveg tekið undir með hv. þingmanni að það er að sjálfsögðu of langt gengið þegar við erum farin að grípa inn í sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga um að ákveða sitt útsvar. En þetta er eins og svo margt annað hjá þessari ágætu vinstri stjórn sem nú er við völd, að þetta eru duldar — ja, þær eru ekkert mjög duldar en það er verið að reyna að dylja hér skattahækkanir á heimilin í landinu í hvívetna og núna samsköttun foreldra eða hjóna og sambúðarfólks og núna þetta. Þannig að skattahækkanir á almenning og hinn vinnandi mann eru úti um allt núna þrátt fyrir gefin loforð hér fyrir nokkrum misserum síðan.
Mig langar hins vegar að ræða við hv. þingmann af því að við komum báðir úr sama kjördæmi og höfum horft til þessara minni byggða. En maður veltir fyrir sér þegar sum sveitarfélög eru kannski orðin það smá að þau eru jafnvel farin að þiggja 35–45% af sínum tekjum frá jöfnunarsjóði — auðvitað er þetta ekki gert með lögum og boðum, þetta er gert í samráði við sveitarfélögin og þetta er gert í einhverju virku samtali, en þurfum við ekki að fara að velta fyrir okkur hvernig við ætlum að sjá fyrir okkur framtíðina upp á það að búa til rekstrareiningar sem eru kannski ekki háðar því að vera með allt að 40, 45% af sínum tekjum úr jöfnunarsjóði?