Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir góðar spurningar. Hv. þingmaður kemur þarna við veikan punkt hjá íbúa Grýtubakkahrepps sem stendur hér. Ég skildi þessa sneið en það á svo sem ekki við um það sveitarfélag þegar að þessu kemur hvað varðar þetta háa hlutfall af framlögum úr jöfnunarsjóði. En vissulega er það þannig að það hafa verið hvatar til þess og því hefur verið beitt í gegnum jöfnunarsjóð sem snýr að sameiningu sveitarfélaga sem hefur reynst vel og mér finnst bara mjög vert að sveitarfélög athugi það. En hitt er svo annað mál að landakortið breytist ekkert þó að þú sameinir sveitarfélögin, vegalengdir minnka ekki neitt. Það er það sem ég var að benda á, t.d. eins og varðandi Norðurþing, varðandi Þingeyjarsveit, að bara í Norðurþingi eru þrír, fjórir þéttbýliskjarnar. Í Þingeyjarsveit eru tveir þéttbýliskjarnar og síðan einhverjir sem eru alveg á mörkunum að vera kallaðir þéttbýliskjarnar, þannig að það er hluti af því sem þarf að koma til. Það þarf að horfa síðan mun meira til framtíðar, það er ekki nóg að hafa bara framlag vegna sameiningar sveitarfélaga í einhver ár í framhaldinu, það þarf að fylgja þessu eftir. Það nákvæmlega sama á við um Langanesbyggð og fleiri sveitarfélög, hvort sem það er í Múlaþingi, Fjarðabyggð eða hvar sem er, því að það verður alltaf að horfa til framtíðar hvað það varðar hvernig við ætlum að standa að því að jafna búsetuskilyrði fólks. En vissulega eru það tækifæri fyrir sveitarfélögin að fara þá leið ef vilji er fyrir hendi.