156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[19:34]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans svar hér. Þessi hlutföll sem ég var að tala um, þetta er tekið af A-hlutanum þannig að B-hluti sveitarfélaganna er ekki inni í þessu. Ég þekki það úr mínu gamla sveitarfélagi þar sem ég var í sveitarstjórn að samkvæmt ársreikningi 2023 þá eru 16% af tekjum Fjarðabyggðar t.d. úr jöfnunarsjóði, 16%. Þar eru sex byggðakjarnar og 100 km á milli Neskaupstaðar og Breiðdalsvíkur.

En það sem ég er hins vegar að velta fyrir mér er að við megum ekki búa til svona kerfi og hvort hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson sé ekki sammála mér í því að við megum alls ekki búa til kerfi sem er í rauninni hvetjandi til þess að menn fari að skrúfa hér alla gjaldstofna og skattstofna í botn og að við megum alls ekki fara að hafa það fyrir reglu að refsa mönnum fyrir ráðdeild. Hvort hv. þingmaður sé ekki sammála þeirri nálgun. Og líka í rauninni hvort hægt sé með einhverjum hætti að hafa ákveðna hvata inni í jöfnunarsjóðnum. Þá er ég ekki að tala um einhverjar skammtímaaðgerðir til þess að hvetja til sameiningar, af því að ég trúi því að sameiningarnar eigi að koma innan frá, þær eigi að koma frá íbúunum en ekki með boðum að ofan. Er í rauninni ekki hægt að setja inn einhvers konar hvata til þess að hvetja sveitarfélögin og þau sjái meiri hag sinn í því að sameinast og búa til stærri og öflugri einingar heldur en er í dag?