Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka enn og aftur hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir mjög góða spurningu. Það er áhugavert að í umsögn í samráðsgátt sem kemur úr Fjarðabyggð þá er komið inn á þetta varðandi sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga. Vissulega, og það kom fram í minni ræðu hvað það varðar, styð ég þessa breytingartillögu sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hefur talað fyrir.
Mér finnst okkur hætta mjög oft til þess að fara þá leið að við erum búnir að finna eina góða lausn til þess að redda öllum hlutunum með því að sameina bara nógu mikið og reyna að ná fram hagkvæmni. Það er mörgu leyti rétt en við verðum samt alltaf að hafa það í huga að — jú, við getum náð fram ákveðinni hagkvæmni í þessu, en það er ekki stóra málið þegar kemur að því sem snýr að innviðauppbyggingu, samgöngum og fleira. Lykilþátturinn í því er, t.d. eins og með landstórt sveitarfélag með sex íbúakjörnum eða þorpum, eins og heimasveitarfélag hv. þingmanns, Fjarðabyggð, að ef grunninnviðir og innviðirnir eru ekki til staðar þá verður alltaf mjög erfitt að veita þá þjónustu sem íbúar í sameinuðu sveitarfélagi þurfa á að halda. Þarna getum við alltaf horft á jaðarbyggðirnar innan þessa sameinaða sveitarfélags. Ég veit að t.d. í Norðurþingi er þetta gríðarlegt átak eins og t.d. varðandi Raufarhöfn; hvernig eigum við að reyna að blása enn meira lífi í Raufarhöfn? Þetta er það sem allir sveitarstjórnarfulltrúar eru að takast á við á hverjum degi.