Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni fyrir góða ræðu. Það vakti bæði athygli mína og gladdi mig, enda báðir Þingeyingar, að þeir punktar sem hv. þingmaður vék að í ræðu sinni hefðu alla vega getað verið í ræðu sem var flutt hér fyrr í dag. En ég velti aðeins fyrir mér: Einn af þessum punktum, eins og hv. þingmaður vék líka að núna í andsvari við hv. þm. Jens Garðar Helgason, varðar þessar vegalengdir sem um er að ræða. Af því að Norðurþing barst hér í tal áðan þá eru u.þ.b. 130 km milli Húsavíkur og Raufarhafnar. Það kom einnig fram í ræðu hv. þingmanns og einnig hér fyrr í dag að Þingeyjarsveit, landmesta sveitarfélag landsins, er með gríðarlegt vegakerfi. Því langar mig að spyrja hv. þingmann. Ég vék að því hér í dag varðandi þessar útgjaldabreytur og vogir fyrir jöfnun vegna mismunandi útgjaldaþarfar, að snjómokstur vegur þar umtalsvert í útgjaldabreytu en í skýringum kemur fram að þar er eingöngu notaður samanlagður kílómetrafjöldi þeirra vega í þéttbýli þar sem sveitarfélagið er veghaldari. Hvort hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson taki ekki undir með mér varðandi það að óeðlilegt sé að ekki sé líka tekið tillit til snjómoksturs á vegum með svokallaðri helmingaskiptareglu þar sem sveitarfélagið annars vegar og Vegagerðin hins vegar deila þessu. Þessi víðfeðmu sveitarfélög eru með svo gríðarlegan fjölda kílómetra, snjóþungra kílómetra. Þetta eru ekki kílómetrar í 101 Reykjavík. Þetta eru ekki staðirnir þar sem kemur bara föl.