Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir mjög gott innlegg og góða spurningu. Ég er þingmanninum hjartanlega sammála hvað þetta varðar. Tökum sem dæmi: Svartárkot í Bárðardal, frá Goðafossi, sem flestir þekkja frá hringveginum, þjóðvegi nr. 1, og þangað upp undir eru 44 km. Þetta svæði er langt frá því að vera snjóléttasta svæðið á Íslandi, það er alveg óhætt að segja það. Vissulega er búið á leiðinni upp eftir en það er aftur á móti töluverður fjöldi af íbúum sem búa uppi í Svartárkoti, sennilega 30% af öllum þeim sem búa að austanverðu í Bárðardal. En þetta er ágætt dæmi til að taka til að reyna að sjá þann aðstöðumun sem t.d. sveitarfélagið Þingeyjarsveit á við að etja þegar kemur að þessu. Og t.d. það að halda heimreiðum opnum, bjóða upp á þá góðu þjónustu, þetta er alveg gríðarlegt verkefni og kostar töluvert mikla peninga en sveitarfélagið hefur verið að taka þetta á sig. Það er mjög mikilvægt hvað þetta varðar að farið verði ofan í snjómoksturinn hvað þetta varðar, varðandi hvort það sé helmingamokstur eða hvað, því að aðstöðumunur sveitarfélaganna, og sérstaklega þegar kemur að þessum útgjöldum, er gríðarlegur. Hann er gríðarlegur. Við getum bara borið saman sveitarfélög suður á landi eða þá þarna norður í Þingeyjarsveit. Það er bara himinn og haf þar á milli, hvort það kemur snjór eða ekki. Það kemur snjór fyrir norðan, það kemur sárasjaldan snjór t.d. í kringum Höfn í Hornafirði og á því svæði.