Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Ég þakka gott svar. Svarið kom mér svo sem ekkert á óvart enda hv. þingmaður kunnur staðháttum, eins og sagði í skaupinu. Hér vék þingmaðurinn að vegalengdinni frá þjóðvegi 1 frá Goðafossi í Svartárkot. Þetta gefur einmitt talsvert góða mynd af því hvað um er að ræða, hvaða stærðir er um að ræða og hvað þessir hlutir skipta gríðarlegu máli. Það skiptir gríðarlegu máli að þetta sé vel útfært, það sé tekið tillit til ólíkra aðstæðna. Ég kom að því hér fyrr í dag að Þingeyjarsveit er með 60% af þessum helmingaskiptamokstri, 60% af norðursvæðinu. Norðurþing kemur þar reyndar skammt á eftir. Þær reglur sem Vegagerðin þarf að starfa eftir, og ekki er við Vegagerðina að sakast því að ekki semur hún reglurnar, eru u.þ.b. 30 ára gamlar svo ég velti því bara upp með hv. þingmanni hvort það sé ekki rétt að hæstv. ráðherra og hv. nefndarmenn taki þetta með í vinnuna, þ.e. að yfirfara þessar reglur sem verið er að vinna eftir. Því að það má ekki vera eitthvað sem er bara í einhverjum hátíðarræðum, á kosningaferðalögum eða opnum fundum þar sem eru sjónvarpsvélar þar sem verið er að tala um mikilvægi samgangna. Það er bara algjört lykilatriði fyrir heilbrigðisþjónustusvæði á þessu svæði, fyrir skólaþjónustu á þessu svæði, fyrir félagsþjónustu á þessu svæði, að samgöngur séu í lagi. Og hluti af samgöngum er að moka snjó, þ.e. að gera fært í vinnuna, fært í skólann, fært í heilbrigðisþjónustu o.s.frv. Þess vegna vil ég spyrja hv. þm. Þórarin Inga Pétursson: Er ekki rétt að nefndin og eftir atvikum hæstv. ráðherra ýti þeirri vinnu af stað að endurskoða þær reglur sem þarna liggja að baki?