156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[19:47]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Þetta er búin að vera áhugaverð og góð umræða hérna í dag um jöfnunarsjóðinn og hlutverk hans og ekki síst um hlutverk og verkefni þau sem sveitarfélögin víðs vegar um landið sinna á degi hverjum og allt árið um kring. Er það er vissulega mjög fjölbreytt og mismunandi eftir svæðum, eins og hér hefur komið fram og við þekkjum. En eftir að hafa verið í um 20 ár á sveitarstjórnarvettvangi og setið margar fjármálaráðstefnur um fjármál sveitarfélaga þar sem jöfnunarsjóðurinn hefur m.a. komið til umræðu þá er það ljóst, og það hefur verið sannreynt á þeim samkundum þar sem helstu sérfræðingar í málefnum og fjármálum sveitarfélaga koma saman, að þeir eru teljandi á fingrum annarrar handar sem kunna út í gegn og skilja nákvæmlega hvernig jöfnunarsjóðurinn virkar í raun og veru. Þannig er nú það. Því er það mjög jákvætt að það sé verið að reyna að einfalda regluverkið og virkni sjóðsins, regluverk sem er afskaplega flókið og frumvarpið ber líka vott um. Það er mjög ítarlegt, upp á 50 síður.

Mig langar að gera það að umræðuefni hérna aftur og eins og svo margir aðrir hér í dag, og fjalla um þessa 14. gr. frumvarpsins þar sem segir, með leyfi forseta: „Ef sveitarfélag fullnýtir ekki heimild sína til álagningar útsvars skal lækka framlög jöfnunarsjóðs árið eftir til viðkomandi sveitarfélags.“ Með öðrum orðum: Með tillögunum, þessu ákvæði, er verið að stíga mjög pólitísk skref. Það á að hækka skatta á almenning, í þessu tilviki íbúa í nokkrum sveitarfélögum, sem mun þýða skattahækkun og auknar álögur á þessa íbúa sem nemur um 1,5 milljörðum kr. á ári. Það á að ganga hart að sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga. Hvorugt gengur upp í mínum huga og margra annarra sem hafa tjáð sig hérna í dag. Það er í rauninni verið að leggja það til að þau sveitarfélög sem fullnýta ekki útsvarið, þ.e. hafa ekki útsvarsálögur í botni á sína íbúa, verði refsað í formi lægri greiðslna úr þessum sameiginlega sjóði sem við erum að ræða hér í dag. Þarna er verið að ganga ansi hart að sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga og koma í veg fyrir að þau sem kjósa að leyfa bæjarbúum að njóta góðs rekstrar geri það með minni álögum á íbúa sína.

Þarna kristallast munurinn á hægri og vinstri pólitík. Þarna kristallast grundvallarafstaða til hins opinbera og til skatttekna og -greiðslna íbúanna. Það er verið að þvinga sveitarfélögin til að hækka álögur á íbúana, sveitarfélög sem hafa haft metnað til að láta íbúana njóta góðrar stöðu með lægri álögum. En það er eitthvað sem segir mér, eins og komið hefur hér fram hjá fleirum í dag og í andsvari fyrr í dag við ráðherra, að sveitarfélögin sem nú neyðast til að hækka útsvarið muni þá leita annarra leiða til að lækka aðrar álögur. Sveitarfélög sem hafa metnað til þess að skilja aðeins meira eftir af fjármununum í vösum þeirra sem greiða skattana og vinna fyrir þeim muni leita annarra leiða og þar með t.d. lækka fasteignaskattsprósentuna.

Þessi sveitarfélög sem munu lenda í því að neyðast til að hækka útsvarsálögu sína eru einmitt í hópi þeirra sem hafa líka undanfarin ár verið hægt og bítandi að reyna að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta bæði á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði svo eftir hefur verið tekið. Þetta snýst um ráðstöfun á fé þeirra sem afla fjárins og hvaða hug við berum til þess. Þessi skilaboð sem koma fram í þessum tillögum eru svo sannarlega á skjön við það sem núverandi ríkisstjórn lofaði. Hún lofaði að hækka ekki skatta á heimilin en þetta er enn eitt dæmið um að við það á ekki að standa.

Ég spurði hæstv. ráðherra að því hér fyrr í dag hvað honum fyndist um það að hækkun skatta á launafólk muni e.t.v. leiða til þess að skattar verði lækkaðir á eignafólk, að skattar á launafólk hækki en lækki hjá eignafólki. Svörin voru nú frekar loðin. En gott og vel. Þetta snýst, eins og ég sagði hér fyrr í ræðu minni, um afstöðuna til skattfjár sem fólkið hefur unnið fyrir og hvaða afstöðu við höfum til þess. Þetta er vinstri og hægri pólitíkin eins og hún gerist skýrust.

Mig langar líka að koma aðeins inn á svokallað höfuðstaðarálag sem á að koma á nú með sérstöku framlagi. Það vekur athygli að engin greining hafi verið gerð á því hvað er þar undir, aðeins fullyrt að ákveðin þjónusta sé borin uppi af viðkomandi sveitarfélagi á svæðinu og þannig eigi það sveitarfélag rétt á höfuðstaðarálagi. En það eru ekki tilgreind sérstök viðmið eða skilyrði sem sveitarfélag þarf að uppfylla til að eiga rétt á slíku framlagi. Höfuðborgarsvæðið t.d. er eitt þjónustusvæði þar sem fleiri sveitarfélög en Reykjavík sinna margþættri þjónustu, ýmist beint eða í formi þjónustusamninga við önnur sveitarfélög. Í frumvarpsdrögum kemur fram að höfuðstaðarálag sé réttlætanlegt þar sem höfuðstaðir sinni þjónustu sem önnur sveitarfélög sinna í minna mæli eða sinna alls ekki og er þjónusta við heimilislausa tekin sem dæmi þar um. En það er ekkert sérstaklega gott dæmi því að það vill þannig til að sveitarfélögin í kringum Reykjavík, í nágrenni Reykjavíkur, eru einmitt með þjónustusamning við borgina um gistinætur fyrir sína skjólstæðinga og greiða um 50.000 kr. fyrir nóttina á mann. Þannig að þessar skýringar halda ekki og eru frekar yfirborðslegar að mínu mati.

Í umræðum hér fyrr í dag varð hæstv. ráðherra tíðrætt um sanngirni milli sveitarfélaga, að þessar breytingar í jöfnunarsjóðsfrumvarpinu snerust allar um sanngirni og jafnræði, það var mikið rætt um það hér í dag. Þá spurði ég út í það hvort réttlætanlegt væri að Reykjavík nyti þess að þar væru nær allar fasteignir ríkisins og af þeim sökum fengi höfuðborgin milljarða tekjustofn á hverju ári sem önnur sveitarfélög njóta alls ekki. Er það réttlætanlegt? Hefði átt að taka tillit til þess í þessum breytingum öllum? Það var líka frekar fátt um svör um þetta atriði. En að mínu mati skortir mjög á að tekið sé tillit til þessarar staðreyndar því að hér er um nokkurra milljarða króna tekjustofn á hverju ári sem höfuðborgin fær.

Jú, ég tek undir það og mun styðja það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hefur lagt fram, að þessi 14. gr. verði tekin út. Hún hefur lagt fram breytingartillögu um það, sem er hið besta mál og algerlega nauðsynlegt því að það er algerlega fáránlegt að ætla að þvinga sveitarfélög til skattahækkana með þessu móti. Ég á eftir að sjá alla þá þingmenn sem standa að þessari ríkisstjórn ætla að tala fyrir því, bara hvern og einn einasta, ég vil bara heyra afstöðu þingmanna Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins til þessa. Það er algjörlega óþarft að hafa þetta þarna inni því að þessi aðgerð mun ekki breyta neinu um úthlutun úr sjóðnum heldur virka bara sem refsing á þessi sveitarfélög. Þá vil ég líka segja að þetta er refsing á þá íbúa sem búa og hafa kosið að búa í þessum sveitarfélögum sem um ræðir. Þarna í þessum sveitarfélögum sem nú er nánast verið að þvinga til að hækka útsvarið, annars lækkar framlagið, býr um fjórðungur landsmanna. Það eru um 100.000 manns sem búa í þessum sveitarfélögum þannig að þetta snertir gríðarlega stóran hóp fólks.

Þessi atlaga að sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga er, eins og ég er að reyna að koma á framfæri, algjörlega galin að mínu mati og ég trúi ekki að þeir sem standa að þessari ríkisstjórn muni halda þessu til streitu, því að þó að það yrðu gerðar þessar breytingar þá myndi það ekki hafa nein áhrif á úthlutun til annarra sveitarfélaga. Það mun ekki hafa nein áhrif á úthlutun til annarra. Það er verið að reyna að segja okkur að það sé bara víst þannig en það er ekki þannig. Þannig að ég á von á því að nefndin og þingið muni í framhaldinu gera þessar breytingar og styðja það að þetta ákvæði hið minnsta verði fellt út.