156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[19:59]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætlaði nú að koma með eina eða tvær spurningar til hv. þingmanns í tilefni af hennar ræðu sem ég hlustaði á. Hún talaði mikið um skattahækkun, að þetta hefði í för með sér skattahækkun. Ég veit að hv. þingmaður er reynd sveitarstjórnarkona og þess vegna liggur beinast við að beina þessari spurningu til hennar: Fylgir útreikningur þessu frumvarpi, hvað þetta mun hafa í för með sér í skattahækkun? Hún nefndi, held ég, hvort það voru 1,5 milljarðar sem þetta myndi valda í skattahækkun. Ég ætlaði bara að spyrja hana um þetta og líka að spyrja hana um það hvaða sveitarfélög væru helst þarna undir. Og þarna á ég við 14. gr., þ.e. ef hún verður að lögum þá verður það orðið hvetjandi, skilst mér, að hækka útsvarsprósentuna. Að fyrir sveitarfélög sem hafa lækkað útsvarsprósentuna sem þeim er heimilt að innheimta þá verði það ekki lengur hagstætt fyrir þau að hafa útsvarsprósentuna lægri fyrir sína íbúa. Þá gefur augaleið að það mun hafa hvetjandi áhrif fyrir viðkomandi sveitarfélög að setja útsvar í æðstu þrep. Hvort þetta sé rétt skilið hjá mér. Og augljóslega er það þannig að ef þú rukkar ekki um tíkall og færð svo ekki tíkallinn sem þú ert vanur að fá þá er alger óþarfi að sleppa því að rukka hann, ef ég skil þetta rétt.