156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[20:02]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir gott innlegg og spurningu. Það er einmitt það sem vantar inn í þetta frumvarp, þ.e. fjárhagsleg áhrif af þessu á t.d. þessi sveitarfélög sem um ræðir sem eru ekki með útsvarið í botni, eða þetta er svona tala. Ég nefndi hérna tölu, 1,5 milljarða. Það er sú tala sem við höfum verið að taka saman til að reyna að átta okkur á upphæðum í þessu sambandi, því að ekki liggur það fyrir í greinargerð eða öðru hérna með þessu, sem skýtur dálítið skökku við því að sami hæstv. ráðherra hefur nú verið að boða að leggja fram frumvarp sem á að meta fjárhagsleg áhrif, m.a. á sveitarfélög. Það hefur líka verið kvartað undan því á sveitarstjórnarvettvanginum að það sé verið að gera ýmsa hluti á hinu háa Alþingi og auka kröfur á sveitarfélögin sí og æ án þess að fjárhagsleg áhrif þeirrar breytinga séu metin sem skyldi. Það er einmitt það sem vantar inn í þetta frumvarp og það er bara mjög góð ábending. En auðvitað erum við að reyna að átta okkur á því hvað hér um ræðir. Það eru fjögur, fimm, sex sveitarfélög á landinu öllu sem eru ekki alveg með þetta í botni. En það eru þessi stærstu sveitarfélög hérna sem maður er kannski að horfa til þar sem allur þessi fjöldi er, um 100.000 íbúar hérna í Suðvesturkjördæmi, sem þessi tala er byggð á, þessir 1,5 milljarðar svona u.þ.b. og jafnvel er hún hærri. Þetta er svona í hógværari kantinum.