156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[20:04]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur kærlega fyrir þetta svar. Það er líka nauðsynlegt að vita það, af því að ég hef nú ekki skoðað frumvarpið alveg út í gegn, að þessi tala sé ekki reiknuð út í frumvarpinu, sem er kostulegt og nánast furðulegt vegna þess að þetta er augljóst, eins og kom fram í svari hv. þingmanns, að þessi sveitarfélög sjá sér engan hag í því að lækka útsvarsprósentu sína. Þetta er auðvitað bara hvatning til aukinnar skattheimtu, eins og hv. þingmaður hefur fjallað um í sinni ræðu.

Það er annað sem ég ætlaði einnig að fjalla um og spyrja hv. þingmann um. Hún ræddi um höfuðborgarálagið og höfuðborgina, að það væri álag á höfuðborginni vegna þess að hún veitti þjónustu umfram aðra staði og önnur sveitarfélög. Ég hef nú stundum bent á það hér í ræðustól að auðvitað nýtur höfuðborgin mjög góðs af því að í henni eru staðsettar allar helstu stofnanir ríkisins, öll ráðuneytin og allar miðstöðvar allra helstu stofnana. Auðvitað þarf slíkt sveitarfélag, eins og þekkt er erlendis líka, ekkert sérstakt álag úr þessum jöfnunarsjóði, alls ekki, vegna þess að auðvitað búa þá embættismennirnir og þeir sem starfa í þessum stofnunum einnig í mörgum tilvikum í höfuðborginni og þá nýtur sú borg auðvitað góðs af útsvarstekjunum og skatttekjum af þessu fólki.

Ég ætla bara aðeins að spyrja frekar um þetta höfuðborgarálag: Er vitað hversu há upphæð það er?