156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[20:06]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir annað andsvar. Það er verið að tala um 2,5%, en hvaða upphæð er um að ræða skal ósagt látið. Einmitt eins og ég kom inn á í fyrra andsvari vantar dálítið mikið um áhrifin af þessu öllu inn í frumvarpið og er það náttúrlega mjög bagalegt.

Varðandi höfuðstaðarálag tek ég undir það sem hv. þingmaður segir og við höfum verið að ræða hérna í dag, að það eru milljarðatekjur sem höfuðborgin hefur af bara fasteignagjöldum af þessum stofnunum: Og það er nú aldeilis búbót og aldeilis eitthvað sem er umfram það sem aðrir hafa af því að það hefur ekkert gengið mjög vel að reyna að fá stofnanir ríkisins út fyrir bara 101 Reykjavík nánast. Þannig að manni fannst líka vanta og vera fátt um svör hérna í dag þegar hæstv. ráðherra var inntur eftir því hvort það hefði verið eitthvert tillit tekið til þess. Það var í rauninni engu svarað þar um.

En ég tek líka undir það og ítreka að það er bara vont að það sé verið að ráðskast svona með sveitarfélögin og þessar mismunandi áherslur sem sveitarstjórnarmenn vilja hafa og fá að hafa í sínum störfum. Við höfum séð það að fólk hefur flust í þessi sveitarfélög vegna aðstæðna, vegna góðrar þjónustu en líka vegna þessa raunveruleika, að það sé verið að reyna að minnka álögur á íbúana. Í þessum sveitarfélögum hefur verið lögð mikil áhersla á að koma til móts við fasteignaeigendur líka (Forseti hringir.) á ári hverju þegar nýtt fasteignamat (Forseti hringir.) blasir við. Það er meira en t.d. höfuðborgin gerir sem hirðir alltaf (Forseti hringir.) fullt fasteignamat og áhrifin af því inn í sína reikninga.