Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með þessari umræðu í dag. Ég sakna þess þó að sjá ekki ráðherrann í salnum, finnst það nokkuð skrýtið að hæstv. ráðherra sem talar fyrir málinu fylgi því ekki eftir og reyndar held ég að það væri góður bragur á því, af því að hér koma ýmis sjónarmið fram, að hæstv. ráðherra væri hér og færi í andsvör og eru þess mörg dæmi að hæstv. ráðherra geri það. Það er augljóslega mikið að gera hjá þessari hæstv. ríkisstjórn að hækka skatta og flytja mál sem þau töldu að væru svo ómöguleg að það ætti að kjósa þau til að fara með ráðherrastólana en þau hafa nú gert lítið annað en að leggja fram hér í þinginu sömu mál og þau sögðu að væru alveg handónýt fyrir nokkrum mánuðum síðan. Eftir því sem ég best veit að þá er þetta mál nokkuð svipað og það frumvarp sem fyrrverandi ráðherra flutti eða það eru ekki miklar breytingar, engar eðlisbreytingar á því sem hann flutti, en það var nú mjög umdeilt og reyndar innan stjórnarliðsins.
Hér hefur hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir bara núna síðast en margir aðrir hv. þingmenn líka farið yfir það að hér er enn og aftur ekki bara verið að hækka skatta beint, sem var lofað að gera ekki, heldur er verið að búa til sérstaka hvata til að sjá til þess að það verði nú örugglega þannig að öll þau sveitarfélög sem eru nú bara með þann metnað og þann vilja að sinna vel sínum íbúum og vera ekki með háa skatta — ja, hvatinn er gerður þannig að það munu örugglega allir nýta sér það að hækka skatta.
Virðulegi forseti. Skattar eru alveg nógu háir á Íslandi. Það er ekki vandamálið að skattar séu ekki nógu háir. Það er bara fullkominn misskilningur. Það sem er of hátt eru opinber útgjöld, það er of hátt. Það er nokkuð sem við ættum að vera að ræða hér, tillögur til þess að lækka útgjöld og lækka skatta. Það er hins vegar áhugavert að skoða jöfnunarsjóðinn í þessu samhengi, sögulegu samhengi. Nú man ég þetta aðeins, hef auðvitað tekið þátt í stjórnmálum í einhvern tíma og verið áhugamaður um þau frá því að ég man eftir mér, og það var sú tíð að það var nú bara ágætissamstaða um það að ákveðinn hluti af tekjum stærri sveitarfélaga, þá aðallega Reykjavíkur, færi að stærstum hluta í þennan sjóð sem myndi greiða til þeirra sem væru minnstir og væru kannski erfiðustu rekstrareiningarnar. Þá var nú tíðin svo og þetta er ekkert ótrúlega langt síðan að það töluðu allir um að Reykjavík væri í svo rosalega góðri stöðu. Það gæti enginn keppt við Reykjavík. Af hverju? Reykjavík var með svo mikla stærðarhagkvæmni, langstærsta sveitarfélagið, þannig að það væri svo miklu hagkvæmara að stýra því sveitarfélagi, veita góða þjónustu í því sveitarfélagi heldur en í hinum sveitarfélögunum. Hvað skeði, virðulegi forseti? Er Reykjavík ekki lengur stærsta sveitarfélagið? Jú, Reykjavík er langstærsta sveitarfélagið. Hvenær heyrðum við síðast að það væri svo gott fyrir Reykjavík að vera með stærðarhagkvæmni? Ég bara man það ekki. Undir forystu Samfylkingarinnar og reyndar hefur Viðreisn verið með og ég veit nú eiginlega ekkert hverjir eru í þessum síðasta meiri hluta, ég held að Flokkur fólksins sé kominn þangað líka. Það eru alls konar flokkar sem buðu fram til að breyta en detta svo alltaf í meiri hluta með Samfylkingunni. Þá er Reykjavíkurborg farin úr því að vera það sveitarfélag sem allir litu til, allir töluðu um að væri í svo öfundsverðri stöðu, í það að það kemur ekki frétt frá Ráðhúsinu í Reykjavík öðruvísi en að það vanti peninga og ríkið þurfi að hlaupa undir bagga.
Í þessu frumvarpi, ef ég skil rétt, á að koma sérstakt höfuðborgarálag. Já, virðulegi forseti. Þeir í borginni fái úr jöfnunarsjóðnum. Á þessum tíma, sem er ekkert mjög langt síðan, voru þeir taldir vera í slíkri sérstöðu af því að þá eins og nú voru þeir með orkufyrirtæki og þeir voru með Reykjavíkurhöfn, sem heitir núna Faxaflóahafnir, þóttu bara langstærstir og sterkastir. Þá var ríkisstjórn hér, ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, sem var með þær hugmyndir að skattleggja Reykjavíkurborg sérstaklega út af þessari sérstöðu sem hún hafði, að hún væri svo gríðarlega sterk. Nú skyldi einhver halda: Er þetta þannig að allar breytingar sem hafa verið á samskiptum ríkis og sveitarfélaga hafa verið með þeim hætti að Reykjavíkurborg hefur alltaf borið skarðan hlut frá borði? Nei, virðulegur forseti, það er ekki þannig. Hv. þm. Rósa Guðbjartsdóttir benti á það og minnti á það að það var baráttumál Sambands íslenskra sveitarfélaga að breyta því fyrirkomulagi sem var. Fyrirkomulagið var þannig að það voru tvær gerðir af fasteignum sem borguðu ekki fasteignagjöld til sveitarfélaga, annars vegar orkumannvirki vegna þess að það var bara sérstaklega skrifað út þegar menn voru að gera þær ráðstafanir og það hvarflaði ekki að neinum manni að það væri hagnaður af orkuvinnslu. Menn voru að búa til græna íslenska orku af því að við vorum hér að byggja upp okkar efnahagslíf, byggja upp okkar þjóðaröryggi og það hvarflaði ekki að neinum manni að það yrði neinn hagnaður af því og því fráleitt að greiða fasteignagjöld til sveitarfélaganna. Það fyrirkomulag er nokkurn veginn enn til staðar, alla vega að stórum hluta. Ég reyndi mitt í síðustu ríkisstjórn að reyna að laga þau mál og var kominn nokkuð áleiðis með það, þó að það hafi nú ekki verið á mínu borði. En síðan var hitt að það voru ekki greidd fasteignagjöld af ríkiseignum. Af hverju? Ung þjóð var að byggja sig upp. Allir vildu ríkisskóla, allir vildu ríkissýslumann, ríkislögreglu, þessar stofnanir sem eru hjá ríkinu, sjúkrahús rekið af ríkinu. Þess vegna var fullkomin sátt um það að það væri ekki verið að taka fasteignagjöld af þessari þjónustu sem viðkomandi sveitarfélög nytu góðs af. Það er breytt. Þetta baráttumál sveitarfélaganna, að ríkið myndi greiða fasteignagjöld til sveitarfélaganna, náðist í gegn fyrir, ég veit ekki hvað það er, 10–15 árum. Hvað gerðist? Þetta eru milljarðar. Ég held að borgin hafi fengið 70% af þessu, eitthvað slíkt, af þessum skattstofni og það er ekki að lækka. Ég man það þegar ég var í borgarstjórn Reykjavíkur og við vorum að greiða atkvæði um það, þá var það að vísu fyrir utan, hvort við ættum að taka þátt í Hörpunni. Það er kannski ekkert hefðbundið hlutverk sveitarfélagsins en það var mjög auðvelt að gera það af mörgum ástæðum. Ein ástæðan var sú að fasteignagjöldin eru svo há að Reykjavíkurborg fékk framlag sitt tiltölulega hratt til baka bara í gegnum fasteignagjöldin. Síðan erum við að byggja eitt stykki Landspítala hér. Það verður þokkalegur gíróseðill af fasteignagjöldum þegar það er allt saman tilbúið. En síðan erum við bara með endalaust af fasteignum hér sem ríkið á sem fara beint til borgarinnar vegna þess að hér höfum við byggt upp stjórnsýslu og þjónustu í meira en árhundrað.
En við erum, virðulegi forseti, enn þá einhvern veginn á þeim stað að stjórnvöld eða þeir sem fara með mál í Ráðhúsinu eru núna að koma borginni í þá stöðu að það talar enginn lengur um það að Reykjavíkurborg sé í svo góðri stöðu vegna þess að hún standi svo fjárhagslega sterkt og ástæðan er pólitísk. Þeir sömu flokkar og eru í ríkisstjórn núna eru búnir að stýra borginni og búnir að snúa þessu algjörlega á haus. Og núna, eins og ég skil þetta frumvarp, er þetta enn ein leiðin til þess að færa fjármuni í auknum mæli úr þessu sem heitir Jöfnunarsjóður sveitarfélaga m.a. til Reykjavíkur. Af hverju? Er Reykjavík í þeirri stöðu, eins og hér voru hv. þingmenn að ræða sem er úti á landi og voru að fara yfir snjómokstur, það var mjög fróðlegt, þar sem er svo ótrúlega stórt landsvæði, þar sem eru svo fáir íbúar, þar sem eru svo dýrar samgöngurnar? Nei, nei, auðvitað er Reykjavíkurborg ekki í því, það er ekki vandamálið. Reykjavíkurborg er auðvitað þéttbýli á íslenskan mælikvarða. Að vísu er það nú enn þá á nokkrum stöðum að menn geta aðeins andað. Ég var einmitt að koma af fundi í Breiðholti þar sem menn geta aðeins andað og þú ert með græn svæði. En þessi meiri hluti má ekki sjá grænan blett án þess að vilja malbika hann eða byggja hús á honum. Það var einmitt umhverfissálfræðingur sem var að fara yfir þau fræði og gaf nú öllu því sem Reykjavíkurborg hefur gert á undanförnum árum ekki háa einkunn, enda vorum við rétt við gímaldið, sem er náttúrlega eins og einhver reyfarasaga. Ef maður myndi lesa bók eða smásögu um þetta gímald þá myndi maður segja: Heyrðu, þetta er ótrúverðug saga, sá sem skrifaði þetta er ekki alveg veruleikatengdur. Það er auðvitað ekki hægt að einn daginn komi hér hús á stærð við risaíþróttahús bara einhvers staðar inn í íbúðahverfi og það bara gerðist einhvern veginn. En það gerðist. Ég er kannski kominn aðeins út fyrir efnið en ég held samt ekki, virðulegi forseti.
Ég hefði viljað að menn myndu svona hugsa þetta aðeins frá byrjun og það er ekki gert í þessu frumvarpi. Hér eru menn að tala um að það væri mikilvægt að fá hvata til þess að sveitarfélög sameinist. Auðvitað erum við í sérstakri stöðu að því leytinu til að við erum fámenn þjóð í stóru landi og við erum annars vegar með 80% af þjóðinni á tiltölulega litlum stað og svo erum við með 20% á mjög dreifðu svæði. En ástæðan fyrir því að við getum haft svona lítil sveitarfélög, fámenn sveitarfélög, þau eru ekki lítil, þau eru alla vega mjög landstór — það er augljóst að það mætti sameina sveitarfélög og ég er alveg sammála því að það er mikilvægt að það komi innan frá — en ástæðan fyrir því að þau eru svo mörg er Jöfnunarsjóður sveitarfélaga. Hann gerir það að verkum að það er hægt að vera með svona lítil eða fámenn sveitarfélög. Ef jöfnunarsjóður væri með aðrar reglur sem myndu ekki hvetja til þess að það væru fámenn sveitarfélög þá yrðu þau færri. En hins vegar skiptir máli að vanda til verka þar. Við sjáum það náttúrlega í langstærsta sveitarfélaginu, Reykjavíkurborg, þar sem ríkisstjórnarflokkarnir eru búnir að ráða núna í rúmlega áratug undir sömu forystu að þú getur tekið allar góðar aðstæður og virkilega klúðrað þeim. Fjármál borgarinnar er gott dæmi um það. Það er svo sannarlega þannig að það er mjög mikilvægt fyrir okkur að við séum með öflugar byggðir og það er gott fyrir alla Íslendinga, einfaldlega vegna þess að það er þjóðaröryggismál. Það hefur orðið gríðarleg fólksfækkun á stórum svæðum á landinu og það er nú bara þannig að við Reykvíkingar viljum ferðast um landið og höfuðborgarbúar á höfuðborgarsvæðinu. Við viljum geta gengið að lögreglu, að sjúkraflutningum og ýmissi þjónustu. Ef þú myndir bara taka það út þá er það hættulega þunnt smurt á mörgum stöðum, m.a. á svæðum þar sem er hætta á náttúruvá. Það er mikilvægt þegar við erum að hugsa um löggjöf, þó svo við séum svo sannarlega að hugsa um hagsmuni og ekki hvika ég frá því að gæta hagsmuna míns kjördæmis eins og aðrir þingmenn gera, en þá þurfum við alltaf að líta á þetta í stóra samhenginu.
Virðulegur forseti. Bara svo við tökum þetta aðeins saman þá er áhugavert að hæstv. ráðherrar í ríkisstjórninni taka ekki þátt og hverfa af vettvangi þegar verið er að ræða þeirra eigin mál. Það finnst mér með ólíkindum í 1. umræðu. Hér eru bara komnar mjög góðar ábendingar og mikið af spurningum. En það er ekki til nógu góður kíkir hér í Alþingishúsinu til að nota til að finna stjórnarliða, hvað þá hæstv. ráðherra. Málið er ekki betra en svo að þeir eru allir hlaupnir í felur. Ég ætla ekkert að lofa fundarlaunum ef menn finna hæstv. ráðherra eða hv. þingmann í stjórnarliðinu. En það er augljóst af umfjöllun um þetta mál að það hefði mátt gera betur, sérstaklega af ríkisstjórn sem mætti hér og sagði að sú ríkisstjórn sem var á undan hefði verið alveg kolómöguleg og það átti að breyta öllu til betri vegar. (Forseti hringir.) En niðurstaðan er nú ansi rýr, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.