156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[20:24]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni ræðuna. Kannski svona fyrst smáathugasemd, þessi leitarleiðangur sem nauðsynlegur er á köflum gagnvart ráðherrum sem hér mæla fyrir málum sínum. Við gætum kannski útfært einhvers lags páskaeggjaleit svona inn í vorið, málað þá til að gera auðveldara að finna þá í mannfjölda. En ég held að það væri til gagns að þeir hlustuðu á þá umræðu sem tengist þeirra eigin málum. Nóg hafa þeir nú kveinkað sér yfir því að komast ekki að í röðinni.

Það eru nokkur atriði sem mig langar spyrja hv. þingmann út í, bæði í ljósi reynslu hv. þingmanns, bæði hér á þinginu og í sveitarstjórnarmálum, og síðan út frá prinsippum sem hljóta alltaf að skipta máli í svona yfirgripsmiklu máli eins og hér er undir. Það eru þessi atriði sem snúa að mismunandi stöðu Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga og m.a., það hefur komið fram í umræðunni fyrr í dag, sú forgjöf sem Reykjavíkurborg hefur að einhverju marki bara á grundvelli allra þeirra ríkisfasteigna sem hér eru og tekna borgarinnar af þeim. Mig langaði að spyrja hv. þingmann hvort það hefði verið skoðað í einhverju samhengi í hans tíð í sveitarstjórnarmálum þannig að hann þekki til. Hins vegar er það þessi lögþvingaða skattahækkun sem hér er verið að leggja til upp á háar tölur þar sem í rauninni sveitarfélög sem hingað til ekki hafa talið sig þurfa að vera með útsvarið í hæstu mögulegu stöðu skuli nú gera það en skerðast annars krónu á móti krónu. Man hv. þingmaður eftir viðlíka refsivendi í málum sem þessum (Forseti hringir.) þannig að skerðing verði króna á móti krónu verði sveitarfélög ekki við því (Forseti hringir.) að innleiða lögþvingaða skattahækkun á íbúa sína?