Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið. Bara til að setja það í samhengi, af því að ég met það þannig að hv. þingmaður sé að vísa til þess þegar ég var í borgarstjórn Reykjavíkur í átta ár (BergÓ: Jú, jú.) og þá voru vinstri menn við völd, þá man ég aldrei eftir því að það hafi verið krafa nokkurn tímann, að menn færu fram á það að fá fasteignagjöldin greidd af ríkinu. Auðvitað vissu menn að það yrði langmest fyrir Reykjavík, eðlilega. Ég man sérstaklega eftir því þegar við vorum að skoða þetta bara svona tölulega, af því að það var sérstakt félag um Hörpu, þannig að þegar við erum að taka ákvörðun um það voru greidd fasteignagjöld sem alla jafnan var ekki gert og þetta var svo gríðarlega há fjárhæð.
Nú ætla ég ekki að mæra þann meiri hluta sem þá var. Hann var ekki góður meiri hluti en guð minn almáttugur, hvað hann var góður miðað við það sem á eftir kom. Og þó svo að menn hafi verið að stíga skref í ranga átt, hvort sem það var í skipulagsmálum, svo sannarlega hækkuðu menn skatta o.s.frv., þá var það allt saman bara mjög mínimalískt miðað við það sem á eftir kom. Við vorum ekki komin á þann stað þá að menn töluðu um að Reykjavíkurborg væri einhvern veginn á framfæri ríkisins eins og menn gera núna. Það er svo augljóst að hugmyndir um það að setja hvatann — sem er meira en hvati, hann er bara hvati og lati eins og með krónu á móti krónu, varðandi það að ýta sveitarfélögum til að hækka skatta — hann er bara til þess að þeir sem standa sig verst, Reykjavíkurborg í þessu tilfelli, líti betur út. En þetta mun hafa þau áhrif að þetta mun hækka skatta á launafólk, kannski lækka menn skattana á fasteignir á móti. (Forseti hringir.) Með öðrum orðum: Þú umbunar eignafólki en launafólki er hegnt sérstaklega.
(Forseti (EÁs): Ég minni hv. þingmann á að ávarpa forseta í upphafi máls síns.)
(GÞÞ: Æ, fyrirgefðu. Það kemur ekki fyrir aftur.)