Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég biðst velvirðingar á að hafa ekki ávarpað virðulegan forseta og geri engar athugasemdir þó að virðulegur forseti hafi aðeins farið rangt með þegar hún kynnti mig til leiks. Okkur verður öllum á í þessu.
Til að svara fyrirspurn hv. þm. Bergþórs Ólasonar, sem hann spyr réttilega, þá er svo einbeittur brotavilji og það kom strax fram og svo þessi feluleikur, af því að menn sögðu í hæstv. ríkisstjórn: Við ætlum ekki að hækka skatta á almenning. En svo var bara samsköttun (Gripið fram í.) samstundis, já, það kom bara strax og auðvitað eru aðrar skattahækkanir eins og t.d. náttúrupassinn og annað slíkt. Þetta er bara skattur á almenning, bara eins og hann getur orðið. Og hv. þingmaður spyr: Bíddu, af hverju eru þeir allt í einu núna að segja nei, við ætlum ekkert að hækka skatta, þegar það er augljóst að það hefur alltaf verið vilji þeirra, alltaf verið einbeittur brotavilji? Þá er mín kenning einfaldlega þessi að þeir eru að þykjast ekki vera vinstri menn. Viðreisn t.d. talar ekki með þeim hætti, talar til hægri stundum en skilgreinir sig sem miðjuflokk og vill ekki láta kalla sig vinstri flokk. Ný forysta Samfylkingarinnar kannaðist bara ekkert við gömlu Samfylkinguna. Þetta minnir svolítið á það, maður er búinn að sjá þetta áður í Íslandssögunni, þegar Jón Baldvin Hannibalsson tók við forystu í Alþýðuflokknum, þá var nákvæmlega sama uppi á teningnum en þegar hann fékk síðan tækifæri til þá vantaði ekkert upp á skattahækkunargleðina. Og það vantar ekkert upp á skattahækkunargleðina hér. Ósvífnin felst í því að koma ekki hreint til dyranna og vera að kalla hlutina einhverju öðru nafni. Þessi ríkisstjórn er skattahækkunarríkisstjórn og hefur sýnt það frá fyrsta degi.