156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[20:34]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa yfirgripsmiklu og mikilvægu umræðu sem hefur átt sér stað hér í dag og það er auðvitað miður að hæstv. ráðherra sé ekki hér í salnum. Ég verð að gefa mér að hann sitji og hlusti á þetta í útsendingu einhvers staðar á skrifstofu sinni eða hvar sem er — hér hristir þingmaður hausinn (Gripið fram í.) í hliðarsal og telur ekki líklegt að svo sé. En ég læt mig hafa það að segja hér nokkur orð um þetta mál þó að ráðherra missi mögulega af því sem hér kemur fram.

Við ræðum hér frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nýja heildarlöggjöf. Þetta eru einar 50 bls. og málið býsna yfirgripsmikið. Auðvitað þarf að vera markmið í sjálfu sér, held ég, að einfalda þær reglur sem jöfnunarsjóðurinn hefur verið undirorpinn um langa hríð. Það hefur stundum verið sagt í gríni að það séu svona álíka margir sem skilji jöfnunarsjóðinn að fullu og reglur hans og úthlutun jöfnunarþingsæta í tengslum við alþingiskosningar. En ég held að það sé kannski meira sagt í gríni. Kerfið hefur verið býsna flókið og snúið við að eiga að mörgu leyti en það hefur auðvitað þetta grunnmarkmið sem hefur komið fram í ræðum í dag, að jafna aðstöðu sveitarfélaga landið um kring og það þarf sömuleiðis, held ég, að vera markmið í sjálfu sér upp að einhverju eðlilegu marki.

En nú erum við hér komin með mál sem ég held að sé öfugum megin, sé rangstætt gagnvart þessu eðlilega marki sem hægt er að horfa til, þ.e. þessi lögþvingaða kvöð í raun sem ætlunin er hér að innleiða með því að refsa sveitarfélögum krónu fyrir krónu á móti sköttum sem eru ekki innheimtir að fullu í hæsta lögleyfða mark, sem er útsvarið í þessu tilfelli. Hér á höfuðborgarsvæðinu, í Kraganum, eru t.d. fjögur sveitarfélög sem ekki fullnýta útsvarið; Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður og Seltjarnarnes og það er eitthvað brogað við það að segja, og ég held að heildartalan, hækkunin sé einhvers staðar rétt um 1.500 milljónir á síðasta ári þannig að hún er væntanlega hærri núna bara út frá launaþróun og fjölgun íbúa, að það séu — hæstv. ráðherra mættur í hliðarsal, ekki réttur ráðherra en velkominn. Reyndar hittir vel á vondan að ég sé að ræða akkúrat þetta núna þegar hæstv. fjármálaráðherra er sestur hér í hliðarsal. — Að þarna sé enn ein skattahækkunin að rúlla í gegnum kerfið í þessu tilviki, 1.500 milljónir á fyrst og fremst íbúa Kragasveitarfélaganna ofan á þá 2,7 sem verða hér teppalagðir yfir fólk sem er undirorpið samsköttun og verður þar fyrir breytingum varðandi þá réttarstöðu, verði frumvarp hæstv. fjármálaráðherra að lögum. En þessi prinsippákvörðun, að ætla að refsa sveitarfélögum og íbúum þess krónu fyrir hvern þúsundkall sem ekki er innheimtur og fellur undir lög, löglegt hámark útsvars, þetta er þannig ákvörðun að ég verð að segja að ríkisstjórn sem segist hafa eitthvert mið-hægra element í sér, hún er að opinbera sig sem harðasta vinstri stjórn og raunar harðari vinstri stjórn heldur en ég hafði séð fyrir mér að yrði raunin nokkurn tímann. Það er hægt að segja: 1.500 milljónir, þetta er ekki stór tala í heildarsamhenginu. En þetta safnast saman; 1.500 milljónir hér, 2,7 milljarðar þar og svo koll af kolli og ekkert af þessu má kalla það sem það er: skattahækkun. Þetta er ekkert annað en skattahækkun. Ef við ætlum að hleypa þessu ákvæði lítt ígrunduðu í gegn þá er ég hræddur um að við séum að opna pandórubox sem, eins og vanalega, menn vita ekki alveg hvað kemur upp úr þegar á reynir.

Ég held að þetta tiltekna mál þurfi að koma til mjög ígrundaðrar skoðunar í hv. umhverfis- og samgöngunefnd, verði málinu vísað þangað að aflokinni þessari 1. umræðu, því að þetta er þannig prinsippatriði að þetta getur ekki atvikast bara einhvern veginn. Ég held að það hljóti að verða ígrunduð afstaða, a.m.k. meiri hluta nefndarinnar, sem þarf að koma fram, sem rökstyður að þetta sé vitrænt og skynsamlegt í einhverju samhengi en að þetta atriði verði ekki látið svona renna í gegn lítt skoðað.

Aðeins áfram út frá prinsippinu. Bæði Viðreisn og Samfylking töluðu til að gera skýrt í aðdraganda kosninga og kannski aldrei skýrar en á fyrstu blaðamannafundunum eftir að ríkisstjórnin var skrúfuð saman, þess efnis að engin skattahækkunaráform væru á launafólk, almenning. Svo bara birtist eitthvað allt annað. Það kemur varla fram mál sem er þeirra eigið, ríkisstjórnarinnar, sem felur ekki í sér skatta- eða gjaldahækkun. Það er þetta mál hérna, það er samsköttunin, það er kílómetragjaldið. Ég gæti talið hér upp obbann af þessum málum sem ríkisstjórnin hefur klambrað saman sjálf. Og til að klára það: Viðreisn og Samfylkingin töluðu mjög skýrt í þessum efnum. Það er sennilega það sem skýrir þennan feluleik með að vilja ekki gangast við því að ríkisstjórnin sé hér í hverju málinu á fætur öðru að leggja til skattahækkanir á venjulegt fólk, skattahækkanir á almenning, skattahækkanir á launafólk. Það er það sem er verið að leggja til í þessum málum; í þessu máli hérna er varðar jöfnunarsjóðinn, í samsköttunarmálinu, í kílómetragjaldinu og svo koll af kolli. Þetta eru skattahækkanir á almenning, skattahækkanir á venjulegt launafólk. Við eigum að tala um þessa hluti eins og þeir eru en ekki í einhverjum sýndarveruleika þar sem Orwell hefði jafnvel lent í vandræðum með að forma nýyrðasmíðina til að réttlæta þetta. Þetta eru allt einhverjar leiðréttingar, lokanir á glufum sem eru ekki raunverulega til, allt einhver della til að komast undan því að gangast við þeirri staðreynd að ríkisstjórnin er hér í enn einu málinu að leggja til skattahækkun á almenning, venjulegt launafólk, án þess að gangast við því.

Ég kemst ekki upp úr þessu fari en 6. hluti greinargerðarinnar, áhrifamatið, alltaf skal þetta verða svona heldur klúðurslegt hjá hæstv. ríkisstjórn. Hér er 6. liðurinn, mat á áhrifum, með leyfi forseta:

„Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það muni hafa áhrif á ríkissjóð.“

Sko, áhrifin. Ég held að við verðum að reyna einhvern veginn að grafa okkur niður á það hvaða áhrif þetta hefur á almenning, fólkið sem borgar þessa skatta og þessi gjöld sem renna til jöfnunarsjóðsins. Þar koma áhrifin fram. Það segir hér, með leyfi forseta, í framhaldi af því sem ég vitnaði til áðan:

„Samþykkt frumvarpsins mun aftur á móti hafa áhrif á fjárhag sveitarfélaga og fela í sér breytingar á framlögum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, m.a. verður …“

Og síðan er haldið áfram þarna. Þannig að hér er komið inn á að þetta hefur áhrif á fjármál sveitarfélaga. En svo í fljótu bragði eru engar tölur, ekki ein. 70% er eina talan sem kemur fram í áhrifamatskaflanum og þar er bara verið að vísa til skýrslu sem hefur legið fyrir varðandi kynjasjónarmið frá 2021. Er það nú öll greiningin sem við þingmenn eigum að taka afstöðu til málsins á, á grundvelli hennar? Hvað er þetta? Hvernig getur þessi ríkisstjórn bara horfst í augu við sjálfa sig, lagt hér fram mál eftir mál eftir mál þar sem áhrifamatið virðist vera unnið af einhverjum vel menntuðum íslenskufræðingi; frábær texti en bara engar tölur í máli sem snýst bara um tölur? Hvað er þetta? Og ráðherrann, ég veit ekki hvað hann er að gera. Hann er alla vega ekki hér að hlusta á þessa gagnrýni og er að öllum líkindum alveg sama. En það kemur í ljós.

Mér finnst blasa við að þetta áhrifamat þurfi þá bara að eiga sér stað inni í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Það þarf bara að kalla til til þess bæra aðila, sérfræðinga sem ráða við verkefnið og greina þetta. Þetta liggur nú væntanlega að meginhluta til fyrir, til að mynda hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og í sveitarfélögum og landshlutasamtökum, en það er ekki í neinu gerð tilraun til þess að draga þessar upplýsingar fram í áhrifamatinu sem fjallar einmitt um það; mat á áhrifum frumvarpsins. Og ég ætla enn einu sinni að leyfa mér að gagnrýna þessa framsetningu ríkisstjórnarinnar og tek mér það bessaleyfi að skjóta hér með svolítið ósanngjörnum hætti á hæstv. fjármálaráðherra sem situr hér í hliðarsal úr því að kollegi hans sem flytur þetta mál er ekki á svæðinu. Þetta er nú það sem ég vildi sagt hafa um þetta.

Það er auðvitað þannig að þrýstingurinn hefur verið umtalsverður í þessa átt, í þessa veruna frá fulltrúum Reykjavíkurborgar um allnokkra hríð. Sá þrýstingur er til kominn vegna þess með hvaða hætti Reykjavíkurborg hefur þróast fjárhagslega núna yfir allnokkuð langan tíma með einhvers lags rað-vinstri meiri hluta sem virðast ekki hafa haft styrk til að ráða við fjárhagslegan hluta reksturs Reykjavíkurborgar sem samt, ja, ef allt væri eðlilegt, ætti að njóta þess að vera langstærsta sveitarfélag landsins með ýmiss konar stærðarhagkvæmni sem ætti að vera bæði rekstri borgarinnar til gagns og íbúum Reykjavíkurborgar til hægðarauka, bæði hvað varðar góða þjónustu á hagkvæmu verðum og eftir atvikum lægri sköttum heldur en þeim sem eru hæstir lögleyfðir. En nú skal reka alla upp í hæsta rjáfur og refsa þeim krónu fyrir krónu bregðist þeir ekki við þeim svipuhöggum.

Það hafi verið rætt hér mikilvægi þess að fækka sveitarfélögum, sameina sveitarfélög. Ég hef alltaf verið á móti þessari lögþvinguðu leið sameiningar sveitarfélaga því að það eru bara þó nokkur lítil sveitarfélög, fámenn, sem hafa bara býsna sterka stöðu og hafa gætt vel að sínum málum í gegnum tíðina. Ég er ekki að tala gegn sameiningu þeirra en það þarf að vera á eigin forsendum þessara sveitarfélaga, ekki með einhverjum lögþvinguðum aðgerðum héðan sem eru í þá veru sem hér er stillt upp því að það sem blasir við er að það er ekki á vísan að róa með stærðarhagkvæmninni. Við sjáum það bara á Reykjavíkurborg og þeirri fjárhagslegu ömurð sem Reykjavíkurborg hefur boðið okkur upp á í þeim tölum sem teiknast upp í uppgjörum borgarinnar. Staðan er auðvitað sú ef þessi froða, þetta svindl, leyfi ég mér að segja, varðandi bækur Félagsbústaða hefðu ekki fengið að viðgangast árum saman þá væri staðan þannig að það blasti við öllum að borgin er í mjög alvarlegri stöðu.

Þannig að fyrir þá sem horfa til þess að þetta mál verði sérstakt vopn, sérstakt barefli í sameiningarmálum, þá held ég að það væri skynsamlegt að forma þá hvata með öðrum hætti, til að mynda bara hvað varðar bættar samgöngur milli sveitarfélaga þar sem ýtt er á um sameiningu. Það voru hér settar í gegn sameiningar á utanverðu Snæfellsnesi fyrir töluvert löngu síðan. Ég man ekki ártalið í augnablikinu en það er töluvert langt síðan. Þeim fylgdu loforð um mjög bættar samgöngur sem raungerðust áratugum síðar, m.a. með veglagningu um Fróðárheiði sem kláraðist ekki endanlega fyrr en á síðasta kjörtímabili. Þannig að ég held að við ættum að fara varlega í það að nýta þetta mál sem það barefli sem þáverandi ráðherra tókst ekki að koma hér í gegnum þingið á síðasta kjörtímabili því að ég held að það hafi verið misráðið. Við eigum að treysta vel reknu sveitarfélögunum til að sinna sínum málum af því að ég ítreka varðandi stærðarhagkvæmnina að það er ekki á vísan að róa með að hún skili sínu. Þar tala dæmin bara sínu máli best í formi Reykjavíkurborgar og fjárhagslegu stöðunnar þar.