Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Rosa hátt púltið. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni kærlega fyrir ræðuna og tek undir með honum þegar hann kvartar yfir fjarveru ráðherra í jafn flóknu og umdeildu máli og við erum að ræða hér í þessum þingsal. En gott og vel. Mér fannst hv. þingmaður vera svolítið jákvæður hérna uppi í púlti og langaði til að heyra hvort það hafi komið hv. þingmanni virkilega á óvart að sömu stjórnvöld og stýra hér Reykjavíkurborg skuli vilja refsa sveitarfélögum sem eru rekin með skynsamlegum hætti.
Og aðeins um mat á áhrifum, hv. þingmaður vildi skoða þau með tilliti til hagsmuna skattgreiðenda. Mig langaði til þess að velta því upp við hv. þingmann hvort hann teldi ekki að sveitarfélag myndi einfaldlega leita annarra leiða til að láta bókhaldið stemma ef þessar reiknireglur verða að lögum. Það eru jú ekki öll sveitarfélög í þeirri stöðu eins og höfuðborgin okkar að geta einfaldlega beitt bókhaldsbrellum og hækkað matsvirði t.d. félagshúsnæðis til þess að láta bókhaldið stemma. Það væri athyglisvert að heyra frá hv. þingmanni hvað honum finnst um þetta.