156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[20:52]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Rosalega er púltið lágt. [Hlátur í þingsal.] Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ef ég byrja á seinni spurningunni varðandi mat á áhrifum og hvort sveitarfélög muni ekki leita leiða til að stemma bókhaldið, með vísan til þess sem Reykjavíkurborg hefur gert núna árum saman, þá er það bara eins og þingmaður kom réttilega inn á, það eru ekkert öll sveitarfélög í færum til þess. Og það sem betra er er að ég held að sveitarfélög hafi ekki áhuga á þeim bókhaldsbrellum sem hafa verið stundaðar hjá Reykjavíkurborg árum saman. Á einhverjum tímapunkti verða til að mynda uppgjör Félagsbústaða færð til rétts vegar og þá mun hryggðarmyndin blasa við þótt hún auðvitað blasi við öllum sem lesa þessi uppgjör yfir. Feluleikurinn sem í þessu felst virðist gagnast gagnvart m.a. mörgum sem flytja fréttir af fjárhagsmálefnum Reykjavíkurborgar og þar fram eftir götunum. En ég held að það verði auðvitað alltaf þannig að á endanum flýtur upp raunveruleg fjárhagsstaða sveitarfélaga og þar er svona heitasta kartaflan, er ég hræddur um, staða Reykjavíkurborgar eins og hún liggur núna.

Hv. þingmaður spurði mig sömuleiðis um hvort þessi refsigleði ríkisstjórnarinnar kæmi mér á óvart. Ég verð að viðurkenna að ég hafði bara ekki hugsað þetta svona en auðvitað á það ekki að gera það. Við sjáum með hvaða hætti sömu flokkar hafa í gegnum undanfarin ár gengið fram í Reykjavík. Af ávöxtunum skaltu þekkja þá, er það ekki einhvern veginn þannig sem Silli og Valdi orðuðu það? (Forseti hringir.) Ég held að þetta sé bara meira af því sama sem við erum að sjá hér í þingsal, að skattalega refsigleðin er alltumlykjandi hjá þessari stjórn (Forseti hringir.) sem á tyllidögum segist vera með einhverja hægri drætti í sér en blasir við að er harðasta vinstri þegar málin eru skoðuð. Afsakið, forseti.