Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir svarið og bara gott að geta haft áhrif á jákvæðni og bjarta heimsmynd hv. þingmanns. En ef við víkjum aðeins aftur að þessu mati á áhrifum af því að það er auðvitað orðin verklagsvani hæstv. ríkisstjórnar hér í þinginu að leggja ekki fram gögn sem við þurfum á að halda til að glöggva okkur betur á þingmálum: Telur hv. þingmaður að við getum mögulega bætt úr þessu í þinglegri meðferð málsins? Standa vonir til þess, er hann bjartsýnn varðandi það?
Svo langaði mig til að taka undir þau orð hv. þingmanns varðandi sameiningu sveitarfélaga að frekar eigi að hvetja heldur en að þvinga. Ég vil spyrja hvort hv. þingmaður telji að eiginleg þvingun felist í frumvarpinu fremur en hvatar til sameiningar sveitarfélaga.