Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Það er ánægjulegt að hæstv. ráðherra sé mættur í salinn, velkominn. Ég þakka hv. þingmanni spurningarnar. Það er þetta með jákvæðu eða neikvæðu hvatana. Neikvæðu hvatarnir geta alveg virkað. Svo ég segi hér örstutta sögu þá höfum við í þingflokki Miðflokksins stundum verið í smá yfirþyngd og við settum okkur það markmið hér fyrir nokkrum árum að ef við næðum ekki markmiðum okkar í þyngdarstjórnun þá yrði sá sem ekki næði í mark að greiða í eigin nafni ákveðna upphæð inn á reikning þingflokks hér í þinginu. Og það var nægilegur hvati til að koma okkur í stand. Þannig að ég held að neikvæðir hvatar geti alveg virkað en alls ekki í þessu samhengi. Það er bara beinlínis, ég ætla að leyfa mér að segja ömurlegt að ætla sér að ná þessum vel reknu litlu sveitarfélögum með afturhurðinni, ef svo má segja, inn í lögþvingað sameiningarferli ef það er ekki gert á forsendum sem sveitarfélögin geta lifað ágætlega með. Ég held að það sé nú þannig. (Forseti hringir.) En varðandi áhrifamatið þá bara verður það að eiga sér stað í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Annað er algerlega óforsvaranlegt.