Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir afbragðsræðu og yfirferð yfir þetta stóra og mikla mál sem jöfnunarsjóðurinn er. Það skiptir sveitarfélögin í landinu alveg gríðarlegu máli hvernig að þessu er staðið og ég er þeirrar skoðunar að það hefur verið alveg þörf fyrir breytingar á regluverki sjóðsins. Ég held að það hafi allir verið sammála um að það fyrirkomulag sem var í gildi hafi kannski verið orðið barn síns tíma að mjög mörgu leyti þannig að ég fagna því að menn hafi farið í þessa vegferð.
Það sem mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann að, af því að ég veit og man að hann var nú eitt sinn þingmaður Norðvesturkjördæmis, er þetta blessaða höfuðborgarálag. Ég er búinn að ræða þetta heilmikið í dag, bæði í ræðu og eins í andsvörum, en mig langar aðeins að fá afstöðu hv. þingmanns til þessarar greinar, 6. gr., að taka 2,5% af jöfnunarframlaginu og setja til Reykjavíkur og Akureyrar. Ef við tökum Reykjavík sem dæmi þá er hún bara í allt annarri stöðu en önnur sveitarfélög landsins hvað það varðar að hér var tekin ákvörðun um að byggja alla stjórnsýslu landsins upp hér. Sú byggðaaðgerð, ein sú stærsta í Íslandssögunni, hefur orðið til að fasteignaskattar, fasteignagjöld, útsvar þeirra sem hér vinna er náttúrlegt gríðarlegt. Ég velti fyrir mér hvort Reykjavíkurborg sérstaklega þurfi einhverja aðstoð umfram önnur sveitarfélög eins og lagt er til hér og í raun og veru er verið að taka af sveitarfélögum landsins. Það er verið að taka af sveitarfélögum landsins og afhenda þessum sveitarfélögum bitlinga með 2,5% af jöfnunarframlagi.