156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[20:59]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að þetta sé að einhverju marki spurning um það hvernig mönnum höndlast að vera stóri bróðir gagnvart minni sveitarfélögum, í þessu tilfelli fyrir þau tvö stærstu. Ég hef haft töluverðar efasemdir um að þessi vegferð sé skynsamleg og í rauninni vinni hún gegn grunnmarkmiðum jöfnunarsjóðsins í sjálfu sér. Eins og ég kom inn á áðan í ræðu minni um það sem áætlað var sem lögþvinguð sameining sveitarfélaga fyrir ekki mörgum árum síðan, þá er ekkert á vísan að róa með hagkvæmni og hagræðingu af stærðinni. En það held ég að sé miklu frekar upp á sveitarfélögin sjálf, hin stærstu, að klaga heldur en annað. Við sjáum t.d. núna bara mjög gott uppgjör Akureyrarbæjar sem er með allt öðrum hætti en hins sveitarfélagsins sem er undirorpið þessu höfuðborgarálagi. Og já, mér hugnast þessi leið svona í fyrsta lagi ekki vel og ég held að þetta sé þvert á raunverulegt markmið jöfnunarsjóðsins og að Reykjavíkurborg, bara með tilliti til alls — stærsti byggðastyrkur eða stærsta byggðaaðgerð allra tíma er augljóslega, eins og hv. þingmaður segir, uppbygging stjórnsýslunnar hér að meginhluta til í Reykjavík. Það er ýmiss konar forskot sem sérstaklega höfuðborgin Reykjavík hefur og mér þykir beinlínis undarlegt að áform séu uppi um að nálgast þetta með þessum hætti innan þessa tiltekna frumvarps.

Ég er alveg sammála því og ég kom inn á það í byrjun ræðu minnar að kerfið var of flókið og tyrfið og það var og er full ástæða til að einfalda það og gera það skýrara í meðförum. Það er eitt og annað ágætt í þessu frumvarpi en svo er annað sem þarf að skoða sérstaklega vel í meðförum nefndarinnar.