156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[21:02]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Svo er það spurningin hvað er ekki í þessu og hvað hefði kannski átt að vera í þessu. Mig langar aðeins að fá sjónarmið hv. þingmanns í því. Það sem hefur verið eitt af keppikeflum okkar sem hafa verið í því að reka sveitarfélag er fyrirsjáanleiki, fyrirsjáanleiki í rekstri. Þetta er það sama og í fyrirtækjum, þetta er það sama og hjá heimilum, við þurfum að hafa fyrirsjáanleika. En það vantar allan fyrirsjáanleika vegna þess að sveitarfélögin vita aldrei hvað þau eru að fá fyrr en 27., 28. eða 29. desember þegar lokaslumpurinn kemur. Þetta er tengt skatttekjum hvers árs þannig að þegar vel árar þá fá sveitarfélögin meira en þegar harðnar á dalnum þá fá þau minna. Það kostar hins vegar alveg jafn mikið að reka grunnskólann eða málefni fatlaðra, sama hvernig árar hjá ríkissjóði. Hefði ekki verið skynsamlegt að koma með tillögu að einhvers konar sveiflujöfnun þarna til að sveitarfélögin væru örugglega að fá (Forseti hringir.) það sem það kostar þau að reka þá þjónustu sem er lögbundin og þannig að menn séu ekki í einhverri óvissu á hverju ári um hvað þeir fá? Hefði ekki þurft að koma því inn í þessi lög fyrst menn voru að gera þessa breytingar?