Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að það blasi við, rétt eins og í fyrirtækjarekstri eins og hv. þingmaður vísar til og sérstaklega í rekstri sveitarfélaga, að fyrirsjáanleiki skiptir gríðarlega miklu máli. Ég hef haft það á tilfinningunni að það sé að einhverju marki svolítið virðingarleysi hjá ríkisvaldinu gagnvart sveitarfélögum í því fólgið hvernig akkúrat þessi litli fyrirsjáanleiki er rammaður inn. Ég held að það hljóti að vera hægt að gera einmitt þetta með haganlegri hætti. Ég held að svona sveiflujöfnun, þó að ég hafi ekki útfærðar hugmyndir í þeim efnum, væri alltaf til bóta. Maður hefur bara séð svo ótal oft einhverja svona hlutfallslega risabreytingu hjá sveitarfélögum á milli ára sem getur ekki verið neinum til gagns og getur ekki verið markmiðið, er ekki markmiðið og var ekki markmiðið (Forseti hringir.) með þessu regluverki sem við erum nú hér að breyta. Við ættum að nýta þetta tækifæri núna þegar heildarlög eru hér til meðferðar.