Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir góða ræðu og góða yfirferð á þessu máli sem er vissulega flókið og hefur alls konar kima og pólitíska vinkla sem vert er að skoða. Þó að margt í þessu sé kannski ágætt þá eru hlutir sem mig langar að spyrja hv. þingmann um. Eins og frumvarpið er úr garði gert núna þá er þar í raun hálfgerð þvingun eða sterkur hvati til að öll sveitarfélög hækki útsvarið í botn. Þá er verið að tala um skattahækkanir á tugþúsundir almennra borgara. Sveitarfélög sem eru vel rekin og hafa mikla tekjumöguleika geta í kjölfarið mögulega lækkað aðra sértæka skatta, fasteignaskatt eða eitthvað slíkt. Ég vil kannski fá sýn hv. þingmanns á það hver sanngirnin er í því að að skattleggja alla og mögulega, þegar þú ert með einhvern ávinning, að deila honum þá til einhverra fárra eins og íbúðareiganda eða deila honum í einhvers konar verkefni þar sem fáir þiggja það sem margir hafa lagt til. Hver er sýn hv. þingmanns á þessa aðgerð per se?