Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir áhugaverða spurningu. Ég held nefnilega að við ættum að gera meira af því að spyrja svona pólitískra spurninga hérna í pontu. Þau eru gjörn á þessa nálgun, vinstri mennirnir, að vilja teppaleggja yfir alla með svona: smá kökubiti hér, hækkum örlítið hér, það munar ekkert um þetta. En svo safnast þetta saman og verður að alvöruupphæðum og skilur okkur eftir í þeirri stöðu að vera, síðast þegar ég athugaði, næstskattpíndasta þjóðin innan OECD þegar búið að taka tillit til fjármögnunar lífeyriskerfis þjóða.
Ég er ekki viss um að vinstri stjórnin sem við sitjum uppi með núna sjái það fyrir sér með þessu máli að umbuna til að mynda sérstaklega fasteignaeigendum þegar er búið að skattleggja alla íbúa viðkomandi sveitarfélaga og endurdreifa því til lækkunar á svona sértækum sköttum eins og fasteignaskattarnir eru. En það er bara eins og með svo margt annað hjá stjórninni að það er ekki litið til afleiddra áhrifa. Og sveitarfélög; við sjáum t.d. með hvaða hætti mig minnir að til að mynda Kópavogsbær, og fleiri sveitarfélög en ég man eftir Kópavogsbæ í augnablikinu, lækkaði hlutfallstölu fasteignaskatta þegar fasteignamat hækkaði umfram vísitölu í síðasta hring. Sveitarfélög munu vafalaust bara fara í þá vegferð og hvort sem það verða fasteignaskattar eða eitthvað annað, leikskólagjöld, það eru ótal matarholur til að líta til í þessu samhengi, þá ímynda ég mér að vel rekin sveitarfélög vilji með einum eða öðrum hætti skila þessu til baka. Ég held að best væri að halda útsvarinu hóflegu, lágu, ekki í lögþvinguðu hámarki. Það væri sanngjarnasta leiðin af þeim öllum því að það er búið að stilla aðra þætti af með ákveðnum forsendum sem menn töldu skynsamlegar. Við skulum ekki þvinga menn til að (Forseti hringir.) fara að hringla í því jafnvægi bara vegna lögþvingaðrar skattahækkunar í þessa veruna.