Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svar við andsvari mínu. Það sem ég vil næst beina sjónum mínum að, því að það hefur aðeins verið umræða um það í þinginu, ekki kannski mikil, er að vissulega þurfa sveitarfélögin ekki að hækka útsvarið, þau eru ekki skyldug til þess. En eins og hefur komið fram þá er þetta króna fyrir krónu; ef útsvarið er ekki í botni verða framlög úr jöfnunarsjóðnum lækkuð næst. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er hvort hann geti sett sig inn í þankagang þeirra sveitarstjórnarmanna sem eru við völd núna í sveitarstjórnum, hvort það myndi ekki teljast ábyrgðarleysi af þeim að hækka ekki útsvarið í botn vitandi það að það skaðar tekjustofna sveitarfélagsins. Spurningin er þessi: Er það ekki óhjákvæmilegt og bara (Forseti hringir.) ábyrgðarleysi að hækka ekki útsvarið í botn af því að sveitarfélög munu tapa á að gera það ekki?