156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[21:10]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er akkúrat vandinn sem sveitarfélögin munu standa frammi fyrir. Það verður raunverulega erfitt að rökstyðja það að setja útsvarið ekki í topp meðan skerðingin er króna á móti krónu eins og regluverkið teiknar það upp. Þá munu sveitarstjórnarfulltrúar auðvitað bara að segja: Við hækkum þetta bara í lögþvingaða hámarkið og gefum eftir sömu krónutölu til baka í einhverjum öðrum gjöldum sem við erum að taka af íbúum okkar. Þar held ég að við séum alltaf að lenda í því að fara verri leið, að í staðinn fyrir að leyfa öllum að halda eftir hærra hlutfalli af sjálfsaflafé sínu þá verði farið í einhverja samfélagsverkfræðilega útreikninga, hvar sé illskást að skila þessum krónum til baka. Við eigum ekkert að vera að setja sveitarfélagið og okkur sjálf í þá stöðu. Þá er bara næsta skref að við setjum hér með lögum í desember hvert ár hvert útsvar allra sveitarfélaga skuli vera. Þá er ekkert raunverulegt hámark, þá er útsvarið bara X.