Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Þetta er risastórt mál og að ræða málefni jöfnunarsjóðsins er ekki einfalt. Ætli það séu ekki fjórir eða fimm sem kunna reiknireglur og formúlurnar sem eru á bak við reiknireglur jöfnunarsjóðsins sjálfs. Þegar sveitarstjórnarmenn eru að ræða, og ég hef verið þar m.a., um málefni jöfnunarsjóðsins þá sýnist að sjálfsögðu sitt hverjum. Það fer eftir því hvar menn búa og hvernig úthlutuninni er háttað. Ef við tölum um jöfnunarsjóðinn þá verðum við að horfa aðeins til lengri tíma varðandi jöfnunarsjóðinn sjálfan af því að ég er á þeirri skoðun — og þegar ég var sveitarstjórnarmaður voru sameiningar í því sveitarfélagi sem ég bý enn þá í, Fjarðabyggð, og eru núna sex byggðakjarnar og það eru 100 km á milli byggðarkjarnanna, ásamt síðan dreifbýlinu í Mjóafirði. Þar hafa sameiningarnar gengið vel fyrir sig og þær hafa verið sprottnar upp og teknar ákvarðanir og greidd um það atkvæði af íbúunum sjálfum. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að við tökum ekki sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaganna til að taka þessa ákvörðun. Að sama skapi velti maður fyrir sér rekstrareiningum þegar tekjur viðkomandi sveitarfélaga eru kannski orðnar 35% eða 45% frá jöfnunarsjóðnum. En þá veltir maður líka fyrir sér hvort það er ekki hægt að vera með einhverja hvata sem verða til þess að menn sjái hag sinn í því að sameinast og stækka einingarnar, sérstaklega þessar minnstu einingar, en alls ekki þannig að það séu einhver boð og bönn eða einhverjar þvinganir af okkar hálfu hér, þingheims, til að ýta mönnum út í sameiningar sem þeir vilja ekki fara í. Ég er ekki að tala fyrir því en ég held að það megi vera einhverjir hvatar.
Talandi um hvata þá eru líka rangir hvatar hér í gangi. Það er verið að refsa mönnum fyrir ráðdeild, það er bara þannig. Það er verið að taka þennan ákvörðunarrétt sveitarfélaganna af þeim, að ákvarða sitt útsvar sjálf, af því að það eru hvatar inni í þessu frumvarpi sem þvinga sveitarfélögin í það að hækka útsvarið til að halda sínum hlut. Það þýðir að skattar munu mjög líklega hækka á 40.000 manns ef þetta verður að lögum. Það er bara þannig. Það eru 40.000 manns að fara að taka á sig skattahækkanir núna á næstunni nema þingið samþykki breytingartillögu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur í þeim efnum að við förum aðra leið. Við megum ekki taka þennan ákvörðunarrétt af sveitarfélögunum með því markmiði að búa til ranga hvata í svona frumvarpi. Við erum að refsa mönnum fyrir ráðdeild, við erum að refsa vel reknum sveitarfélögum sem geta haft útsvarsprósentuna ekki í hámarki og við eigum ekki að gera það.
Það er nú bara þannig, virðulegur forseti, að af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá. Við erum með vinstri stjórn á Íslandi í dag og hún getur kallað sig hinum og þessum nöfnum, verkstjórn og ég veit ekki hvað og hvað. En erum við búin að gleyma gömlu, stóru, fínu orðunum sem voru búin til um síðustu vinstri stjórn; norræna velferðarstjórnin, skjaldborgin um heimilin? Og hvernig var það? Ja, heimilin fundu ekki fyrir því þegar skattarnir hækkuðu og hækkuðu og núna eru skattarnir að hækka og hækka. Þetta er allt dulið inni í t.d. þessu frumvarpi. Þetta er dulið inni í því þegar núna er verið að fara að taka af samsköttun sambúðarfólks. Þarna eru nokkrir milljarðar, í sambúðarsköttunum eru tveir og hálfur eða þrír milljarðar. Það er hin vinnandi stétt þessa lands og heimilin sem eru að fara að taka á sig auknar skattbyrðar þrátt fyrir að þessi vinstri stjórn og þeir flokkar sem eru við stjórn hafi lofað því að þeir ætluðu ekki að hækka skattana. Það er ekki þannig að fólk kaupi það að þú getir kallað bara skattahækkun einhverju öðru nafni og þá bara; já, auðvitað er þetta ekki skattahækkun. Heimilin finna það í eigin pyngju og sínum ráðstöfunartekjum um hver mánaðamót ef allt þetta mun fara í gegn og við munum sjálf gera okkar besta í að sjá til þess að þetta fari ekki í gegn til þess að heimilin taki ekki á sig þessar auknu byrðar fyrir vinstri stjórnina sem nú er. Alveg sama hvaða nafni hún kallar sig þá er þetta vinstri stjórn og við höfum reynslu af því og heimilin og hinn vinnandi maður hefur reynslu af því hvernig vinstri stjórnir virka. Það situr meira eftir í pyngju hans.