Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Hv. þingmanni var tíðrætt um vinstri stjórn og skattahækkunarhvata í þessu frumvarpi til laga um jöfnunarsjóð. Þetta nýja jöfnunarlíkan sem fjallað er um í frumvarpinu hefur ekki neina hvata fyrir sveitarfélög til að hækka álagningarhlutfall útsvars. Þvert á móti er verið að fella niður hvata til að hafa hærri fasteignaskatta með hinu nýja jöfnunarlíkani. Það er verið að fella niður fasteignaskattaákvæðið í lögunum. Þær staðhæfingar að frumvarpið leiði til skattahækkana eru því eingöngu dregnar af vannýtingarákvæði frumvarpsins. Ég hef farið vandlega yfir það sjónarmið, gerði það hér í dag, sanngirnissjónarmið sem ákvæðið byggir á, sem er það að sveitarfélag þarf að fullnýta útsvarið áður en það fær fé greitt úr jöfnunarsjóði. Af hverju er þetta sanngirnissjónarmið? Jú, vegna þess að sveitarfélag sem fullnýtir ekki útsvarið, fer svo í jöfnunarsjóð og fær greitt þaðan skerðir greiðslur úr jöfnunarsjóði til hinna sveitarfélaganna. (BHar: Nei.) Það er það sem gerist. (BHar: Það er rangt.) Að sjálfsögðu gerist það þannig. Þetta er „zero-sum gain“, svo ég noti lélega íslensku, í sjóðnum. Það er eðlileg sanngirniskrafa vegna þess að tekjumódelið miðast við tekjumöguleika sveitarfélagsins og útgjaldaþörf. Tekjumöguleikar sveitarfélagsins eru þeir möguleikar sem það hefur til að afla sér tekna og það er með útsvarinu. Það er sanngirnismál að það verði gert áður en að það fer í jöfnunarsjóðinn. Jöfnunarsjóðurinn á ekki að niðurgreiða skattalækkanir sveitarfélags svo mikið er víst. Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á þessu og ég tala nú ekki um varðandi sveitarfélög, hvort sveitarfélög í hans kjördæmi eigi að fara að greiða niður skatta hjá ákveðnu sveitarfélagi í Suðvesturkjördæmi.