156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[21:20]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það sem er verið að gera hér er að það er verið að einfalda kerfið, það er verið að gera það gagnsærra. Það er verið að byggja á því hverjir tekjumöguleikarnir eru og hverjar útgjaldaþarfirnar eru. Þetta er félagslegur jöfnunarsjóður, þetta er félagslegt jöfnunarkerfi sveitarfélaga. Þetta á rætur að rekja til fátækrahjálpar árið 1930. Þetta fékk nafnið Jöfnunarsjóður 1937 og í núverandi mynd er þetta frá 1992. Rétt er að nefna að ástæða þess að hið svokallaða fasteignaskattsframlag sjóðsins er lagt niður og sameinað hinum framlögunum, þetta er rakið ítarlega í greinargerð frumvarpsins, er m.a. að það jafnar ekki lengur tekjumöguleika sveitarfélaga af fasteignaskatti, eins og sjá má í greinargerðinni. Þetta fasteignaskattsframlag byggir á gömlum grunni og auk þess hefur framlagið lengi verið gagnrýnt. Fyrir hvað? Fyrir að vera skattahvetjandi. Við erum að leggja niður skattahvetjandi áhrif í frumvarpinu þar sem hærri álögur á eigendur fasteigna þýða hærri framlög úr sjóðnum. Þetta erum við að leggja niður. Við erum að leggja niður skattahvatann í núgildandi lögum um það að hærri álögur á fasteignaeigendur í sveitarfélögum þýði hærri framlög úr sjóðnum. Og svo kemur hv. þingmaður og segir: Nei, heyrðu, þetta frumvarp hérna er skattahvetjandi. Við erum einmitt að gera öfuga. Þetta er skattalækkandi. Þetta er hvatning til lægri skatta á íbúa sveitarfélaganna og um það má lesa vel í greinargerð frumvarpsins um fasteignaskattsframlagið sem vonandi verður lagt niður nú í sumar og verður lagt niður nú í sumar þegar lög um jöfnunarsjóð taka gildi.