Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans seinna andsvar. En það er bara þannig að það er verið að færa einn skattahvatann yfir á annan skattahvata. Það er nú allt og sumt sem er verið að gera. Ég skil það mjög vel að stjórnarliðar séu viðkvæmir fyrir því að ræða gjörðir sínar hér í í þingsal, að hækka skatta og álögur á heimilin í landinu, á hinar vinnandi stéttir í landinu, en það er bara það sem er að gerast. Og auðvitað eru stjórnarliðar og hæstv. ráðherra og aðrir stjórnarliðar viðkvæmir fyrir því þegar við komum og bendum á það, þingmenn stjórnarandstöðunnar, að það er alveg sama hvort þú kallar það að loka glufum, leiðréttingu eða hvað sem er; allt eru þetta skattahækkanir. Þetta eru skattahækkanir sem munu lenda á heimilunum í landinu, á hinum vinnandi stéttum í landinu. Það er bara þvert gegn því sem var lofað hér fyrir nokkrum vikum síðan í kosningabaráttunni; það átti ekki að hækka álögurnar á heimilin í landinu, það átti ekki að hækka álögur á almenning og ég veit ekki hvað og hvað. En þetta er allt brostið. Auðvitað er það vont og óþægilegt fyrir hv. þingmenn og hæstv. ráðherra að þurfa að koma og svara því og reyna að tala sig í gegnum það að það sem er kallað að loka glufum eða að leiðrétta, eða hvaða orðaskrúð sem er notað um skattahækkanir, að það sé verið að benda á það. En almenningur mun finna fyrir því. Ef þetta fer í gegn þá mun almenningur finna fyrir því.