Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Það frumvarp sem hér liggur fyrir um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga er til marks um óheillavænlega þróun í íslenskri stjórnsýslu. Vissulega er aðdragandinn einhver, sagan enn lengri. Það er enginn hér að halda því fram að hér sé endilega um einföld úrlausnaratriði að ræða sem blasi við. Það er enginn að halda því fram. En sú þróun sem hefur verið með frumvarpi þessu er vond þróun sem felur í sér minna frelsi fyrir sveitarfélög, meiri afskipti ríkisins og að lokum, eins og hefur verið komið inn á, frú forseti, því miður meiri álögur á heimili landsins.
Við í Sjálfstæðisflokknum höfum ávallt staðið vörð um sjálfstæði sveitarfélaga. Við höfum barist fyrir því að sveitarfélög hafi raunverulegt svigrúm til að forgangsraða, sýna ábyrgð í rekstri og ráðstafa tekjum sínum í þágu íbúa, bera ábyrgð. Það sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur leggur nú til er hins vegar allt annað. Það er skref í átt að meiri miðstýringu, meiri jöfnun í nafni réttlætis en er í raun meiri skattheimta og minna sjálfstæði. Við eigum að standa vörð um þá hugsun, frú forseti, að sveitarfélög sem sýna aðhald og ábyrgð í rekstri, sem stilla útsvari sínu í hóf, eigi ekki að vera refsað fyrir það. En hvað er verið að gera hér í því frumvarpi sem liggur fyrir? Með þessu frumvarpi er í raun verið að senda sveitarfélögunum þau skilaboð að ef þau leyfa sér að hafa útsvarið ekki í hæstu löglegri hæð þá skuli þeim vera refsað með skertum framlögum úr jöfnunarsjóði.
Það er í raun ekki hægt að skilja þetta á annan veg, frú forseti, en að hér eigi að binda í lög sósíalisma. Hér á að binda í lög hæstu mögulegu skatta, ekkert svigrúm fyrir annað. Pólitísk hugmyndafræði þessarar ríkisstjórnar skuli vera sett í lög, minna má það ekki vera.
Við skulum líta aðeins nánar á það sem hér er að gerast með einu dæmi. Kópavogsbúar greiða t.d. með sínum útsvarstekjum um 1,5 milljörðum meira í jöfnunarsjóð en þeir fá til baka. Þetta er í sjálfu sér í lagi. Við viðurkennum hlutverk jöfnunarsjóðs við að jafna þjónustugrunn sveitarfélaga. En nú á að ganga lengra og nú á að breyta jöfnunarsjóði í tæki til að fjármagna hallarekstur þeirra sveitarfélaga sem hafa ekki sýnt fjármálalega ábyrgð, mögulega af alls konar ástæðum en niðurstaðan er samt skýr: Það á að gera jöfnunarsjóð að tæki til að fjármagna hallarekstur þeirra sveitarfélaga. Og það á að gera með því að taka fé frá þeim sem hafa reynt að haga sér innan línu. Reykjavík sem hefur verið rekin með viðvarandi halla árum saman, hefur verið með óráðsíu árum saman, á samkvæmt frumvarpinu að fá 400 milljónum meira á ári. Reykjavík. Hver á að borga? Útsvarsgreiðendur í vel reknum sveitarfélögum, útsvarsgreiðendur sem eru ekkert annað en heimili. Heimilin eiga að greiða.
Þetta er auðvitað ekkert annað en skattahækkun í dulargervi, virðulegi forseti, þó ekki mjög góðu dulargervi og ekki bara skattahækkun, þetta er árás á þá hugsun að sveitarfélögin eigi sjálf að bera ábyrgð á eigin fjármálum. Þetta frumvarp gengur út á þá hugmyndafræði að allt fé sem fólk aflar sér eigi hið opinbera í raun og það að fá að halda eftir hluta af eigin tekjum sé í raun bara eftirgjöf af hálfu ríkisins. Þetta er ekki bara röng hugsun, hún er skaðleg. Skattheimta á Íslandi er þegar ein sú mesta í heimi, útgjöld hins opinbera sömuleiðis. Það er með öllu fráleitt að ríkið taki að sér að svipta sveitarfélag þeirri ábyrgð sem fylgir því að reyna að halda sköttum í hófi.
Það eru enn sveitarfélög á Íslandi sem sýna ábyrgð í rekstri, þau stilla útsvari sínu í hóf og nýta aðhaldið til að bæta þjónustu. Þau sveitarfélög eiga ekki að sæta refsingu en það er akkúrat það sem þetta frumvarp gerir. Það setur upp ranga hvata, hvata til að hækka skatta, til að reka sveitarfélög með minni ábyrgð, til að treysta á að hinir borgi.
Virðulegi forseti. Þetta frumvarp stefnir sjálfsforræði sveitarfélaga í voða. Það dregur úr möguleikum sveitarfélaga til að stýra eigin rekstri með ábyrgð. Það neyðir þau í raun til að hækka útsvar eða sæta skerðingu á framlögum eins og áður hefur komið fram. Við skulum hafa eitt á hreinu. Þetta frumvarp mun leiða til hærri skatta á heimili landsins. Og hvað þýðir það? Eina skýra loforð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var: Við munum ekki að hækka skatta á venjulegt fólk. Þetta frumvarp gerir ekkert annað en það og það eru tveir, þrír mánuðir liðnir. Þetta frumvarp mun gera ekkert annað en það. Það mun líka draga úr hvata til að reka sveitarfélög vel. Það mun setja sjálfstæði sveitarfélaga í hættu. Það mun magna miðstýringu ríkisins.
Mér leikur forvitni á að vita hver heildaráhrif þessa eru. Ég heyrði hæstv. ráðherra hér í orðaskiptum áðan fullyrða að þetta muni samt í rauninni hvetja til lægri skatta út af fasteignasköttunum. Þrátt fyrir að hér sé verið að skilyrða og þvinga sveitarfélög til að hækka sitt útsvar séu þetta samt í rauninni skattalækkandi hvatar. Gott og vel, hljómaði mjög áhugavert í mín eyru. Hvar liggur fyrir heildarúttekt á áhrifum þessa? Getur verið að ríkisstjórnin sé í enn einu málinu að fullyrða eitthvað slíkt án þess að geta bent á eitt einasta gagn því til staðfestingar, einhverja eina tölu, einhvers konar heildræna úttekt á afleiddum áhrifum frumvarpanna sem hér er verið að leggja fram eða er það bara fullyrt að þetta verði allt saman hið jákvæðasta mál þó að það sé hvergi hægt að sýna fram á útreikninga þess efnis? Mér leikur forvitni á að vita það, frú forseti.
Í stað þess einfaldlega að styrkja stoðir jöfnunarsjóðs með einföldun og auknu gagnsæi sem væri skynsamlegt er gengið í þveröfuga átt. Við getum kallað þetta margt. Misskilning kannski, miðstýringu, ranglæti. Það sem þetta er ekki síður er tilraun til að binda sósíalisma í lög. Við eigum að hafna því og ég vona að stjórnarliðar beri gæfu til að taka mjög alvarlega og með opnum hug breytingartillögu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, hún er skynsamleg í flókinni stöðu. En þessu frumvarpi eigum við að hafna.