156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[21:32]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég tel mig knúinn til að koma hér í ræðustól og fjalla aðeins um það sem hv. þingmaður fjallaði hér um. Það var talað um sósíalisma og það var talað um að þetta væri mikið skattahækkunarfrumvarp. Ég get ekki annað en bent á það sem ég sagði í ræðu minni í dag, að þetta frumvarp var áður lagt fram á 154. löggjafarþingi, 2023–2024, en náði ekki fram að ganga. Það er að mestu sambærilegt því frumvarpi sem lagt var fram fyrir tveimur árum, byggist á grunni vinnu starfshóps sem ég minntist á í fyrri ræðu. Þá var hv. þingmaður stjórnarþingmaður og þetta var stjórnarfrumvarp. Og núna talar hann um þetta frumvarp sem eitthvert sósíalískt, kommúnískt frumvarp, skattahækkunarfrumvarp.

Ég get endurtekið það sem ég hef sagt hér áður í dag varðandi fasteignaframlagið: Fasteignaskattsframlag sjóðsins í dag er skattahvetjandi. Af hverju er það skattahvetjandi? Það er vegna þess að hærri álögur eigenda fasteigna í sveitarfélögunum þýða hærri framlög úr sjóðnum. Það er verið að taka þetta úr sambandi. Það er verið að koma í veg fyrir veg fyrir þetta skattahvetjandi framlag. Og annað sem er líka mjög mikilvægt; það kom fram í ræðu hv. þingmanns að sveitarfélög eins og Kópavogur greiddi 1,5 milljarða í sjóðinn en fengi minna til baka. Það segir í c-lið 2. gr., um tekjur, með leyfi forseta:

„Hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga af álagningarstofni útsvars ár hvert:

1. er nemur 0,77% til jöfnunar vegna reksturs grunnskóla,

2. er nemur 1,44% til jöfnunar vegna málefna fatlaðs fólks.“

Ég fór yfir þetta í ræðu minni í dag og gott ef ekki í andsvörum líka. Þessi framlög, 0,77% til jöfnunar og líka 1, 44%, fara aldrei til sveitarfélaganna, aldrei. (Forseti hringir.) Þau fara beint í jöfnunarsjóðinn. Þetta er ekki peningur sem á að fara til sveitarfélaganna. Það var samið um þetta á sínum tíma, en þetta gæti alveg verið hluti af tekjuskatti, farið beint í ríkishítina og úr ríkissjóði til jöfnunarsjóðs. (Forseti hringir.) Þannig að þetta er rangfærsla hjá hv. þingmanni.

(Forseti (ÞSv): Nú varð forseta rækilega á í messunni. Hæstv. ráðherra fékk allt of langan tíma en þar verður við að sitja.)