156. löggjafarþing — 31. fundur,  28. apr. 2025.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.

270. mál
[21:35]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Í seinni hluta fyrriparts ræðu sinnar, þeim of langa, var hæstv. ráðherra með þvílíkan orðhengilshátt að ég ætla ekki að svara honum frekar.

Varðandi fyrri hluta hans spurningar mér til handa þá þakka ég fyrir upprifjunina á að ég hafi verið þingflokksformaður í stjórnarliði þar sem þetta frumvarp var afgreitt úr þingflokknum. Ég kann að meta þá upprifjun. Hæstv. ráðherra til upplýsingar þá fór það frumvarp úr þingflokknum með þeirri breytingu sem liggur nú fyrir í breytingartillögu hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, enda hvatti ég stjórnarliða að kynna sér þá breytingu til þess að hægt væri að samþykkja þetta mál. Ég hvet hæstv. ráðherra til að kynna sér aðeins betur söguna ef hann ætlar að vera með slíkar leiðbeiningar mér til handa.