Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Varðandi söguna og síðustu ríkisstjórn og talandi um núverandi ríkisstjórn sem sósíalíska ríkisstjórn þá get ég fullyrt það að síðasta ríkisstjórn var mesta „woke“ ríkisstjórn allra tíma á Íslandi. (Gripið fram í: Ó, ó. ) [Hlátur í þingsal.] Það er alveg gefið mál. Ég var 1. varaformaður allsherjar- og menntamálanefndar, hæstv. formaður var hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir og þessi mál runnu svoleiðis til okkar. Maður hafði ekki undan að lesa þessi mál. Við skulum ekki vera að tala um sósíalisma hér vegna þess að síðasta ríkisstjórn var alveg með hreinum ólíkindum hvað það varðar, algerlega með hreinum ólíkindum.
Varðandi það hvort sum sveitarfélög séu að greiða meira af útsvari sínu inn í sjóðinn en þau fá úr honum þá bara ítreka ég það aftur að framangreindir fjármunir sem ég minntist á áðan fara beint í jöfnunarsjóð, hafa aldrei viðkomu hjá viðkomandi sveitarfélögum. Ef sú leið hefði verið farin við yfirfærslu þessara verkefna, þ.e. málefni fatlaðra og grunnskóla, þá hefði verið hægt að hafa það þannig að tekjur sjóðsins væru hlutfall af tekjuskattsstofni frekar en útsvarsstofni. Þetta var frekar haft sem hlutfall af útsvarsstofni til að tryggja þessa fjármuni til jöfnunarsjóðs, tryggja þá til sveitarfélaganna. Það hefði ekki verið gert hefði þetta verið hluti af tekjuskattsstofni. Þessi umræða um það að sum sveitarfélög séu að greiða meira í sjóðinn en þau fá úr honum hvað þetta varðar er einfaldlega röng. Hún stenst ekki staðreyndir málsins og allt sveitarstjórnarfólk í landinu veit það.