Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Hér er vissulega farið um víðan völl og ég verð að segja að mér þykir það ákveðið afrek í fjallabaksleið að í bullandi vörn gagnvart þeirri staðreynd að hér sé verið að lögfesta sósíalisma þá er verið að tala um að síðasta ríkisstjórn hafi verið ofboðslega mikið „woke“. Með fullri virðingu, ég veit að klukkan er kannski orðin áliðið, eins og sagði nú í einu ágætu áramótaskaupi, en með fullri virðingu, hæstv. ráðherra: Ég stend við það að þetta frumvarp sem liggur hér fyrir er stórkostlega alvarlegt, sósíalískt inngrip inn í sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga. Það hefur ekkert að gera með „woke“ fyrri ríkisstjórnar, meint eða rétt. Við getum rætt það við betra tækifæri en hér skulum við horfast í augu við það frumvarp sem hæstv. ráðherra er að leggja fyrir og verður hættulegt sveitarfélögum þessa lands. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)