Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég vil nú byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Þessi ræða hefur vakið geðshræringu að vonum. En þeir segja fyrir vestan að ef það labbar eins og önd, kvakar eins og önd og syndir eins og önd þá er kvikindið líklega önd. Það er ekki leiðrétting sem rýrir ráðstöfunarfé almennings, það eru skattahækkanir. Og það er ekki leiðrétting sem hækkar gjöld almennings í landinu, það eru skattahækkanir. Þannig að menn geta komið hér og haldið því fram að öndin sé eitthvað allt annað en þetta eru samt skattahækkanir.
Þessi vinstri stjórn sem nú situr er náttúrlega búin að koma fram með alls konar skattahækkanir í dulargervi, ekki mjög beysnu en þeir reyna. Ég hjó eftir því sem hv. þingmaður sagði um sósíalismann en það er reyndar eitt sem svona snýr mér aðeins við hvað það varðar og það er að þetta frumvarp eins og það liggur fyrir núna mun ef eitthvað er hygla þeim sem búa í eigin húsnæði en það mun hins vegar refsa þeim sem eru t.d. á leigumarkaði. Hvar er vinstrið í því? En á móti kemur að það er náttúrlega alvarlegt ef ein ríkisstjórn er með aðför að sjálfstæði sveitarfélaga og það er mjög alvarlegt ef ein ríkisstjórn vill fara í átök við sveitarfélögin í landinu. Þess vegna langar mig til að spyrja hv. þingmann hvort hún sé sammála mér í því að þessi svokallaða leiðrétting, sem er skattahækkun, sé aðför að sjálfstæði sveitarfélaga af hálfu ríkisvaldsins.