Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni sömuleiðis fyrir andsvarið. Það er líka sérlega skemmtilegt að fá tækifæri til að ræða dýr í þessari pontu. Ég er búin að ræða svolítið um hunda og ketti og nú erum við að tala um endur. Ég tek undir líkingu hv. þingmanns, að stundum væri kannski bara einfaldara að horfa á dýrið sem hagar sér eins og það gerir í staðinn fyrir að þykjast eitthvað annað með það. En að öðru leyti varðandi það sem hv. þingmaður kom hérna inn á þá ætla ég bara að fá að segja að ég er bara hjartanlega sammála honum. Það er stutta svarið.